27.4.2010 | 14:18
Fallast ekki á bann við hvalaviðskiptum/auðvitað ekki!!!!!!
Innlent | mbl.is | 27.4.2010 | 13:56
Íslensk stjórnvöld geta ekki fallist á Alþjóðahvalveiðiráðið kveði á um bann við milliríkjaviðskiptum með hvalaafurðir. Þá segir sjávarútvegsráðuneytið, að þeir kvótar sem lagðir hafa verið til fyrir Ísland í málamiðlunartillögu um hvalveiðar séu langt undir sjálfbærnimörkunum.
Formaður og varaformaður Alþjóðahvalveiðiráðsins hafa ákveðið að leggja fram tillögu í eigin nafni. Reiknað er með að hún verði tekin fyrir á ársfundi ráðsins í Agadir, Marokkó, í júní n.k. Í tillögunni er að finna málsgrein, sem ríki andstæð hvalveiðum höfðu lagt til, um að aðeins megi nota hvalaafurðir innanlands, sem væri í raun bann við milliríkjaviðskiptum og kæmi verst niður á hagsmunum smáríkja með lítinn heimamarkað.
Tillagan felur svo m.a. í sér kvóta þeirra ríkja sem stundað hafa hvalveiðar og gerir ráð fyrir árlegum kvótum fyrir Ísland á tímabilinu 2011-2020 upp á 80 langreyðar og 80 hrefnur.
Íslensk stjórnvöld geta ekki fallist á umrætt bann við milliríkjaviðskiptum með hvalaafurðir. Í fyrsta lagi geta Íslendingar sem útflutningsþjóð sjávarafurða ekki fallist á að skorður séu settar á viðskipti með sjávarafurðir sem fengnar eru með sjálfbærum hætti. Í öðru lagi falla viðskipti utan valdsviðs Alþjóðahvalveiðiráðsins og er ráðið því ekki bært til að fjalla um þau. Jafnframt er ljóst að þeir kvótar sem lagðir hafa verið til fyrir Ísland, eru langt undir sjálfbærnimörkunum og er í því sambandi rétt að hafa í huga að ráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar hljóðar upp á 200 langreyðar og 200 hrefnur á ári," segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.
Þar kemur fram, að íslensk stjórnvöld leggi áherslu á að ekki verði teknar neinar ákvarðanir á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins í Agadir nema með almennu samkomulagi aðildarríkja þess, en fram að þessu hafi verið unnið á þeim grundvelli.
Það þjónar ekki framtíðarhagsmunum ráðsins að freista þess að keyra í gegn ákvarðanir með atkvæðagreiðslu, enda væri það til þess fallið að auka enn á sundrungu meðal aðildarríkja ráðsins og leiða til falls þess," segir ennfremur.////þarna er enn eitt malið sem á að vaða með yfir okkur,þetta gengur ekki að lofa okkur ekki að veiða sjálfbært,við verum að gera allt til að afla gjaldeyris,það er nógur markaður fyrir þetta og við eigum að kynna þetta fyrir hinum sveltandi þjóðum,og svo annað ESB samþykkir ekki hvalveiðar en eitt dæmið sem sannnar að þangað höfum við ekkert erindi/Halli gamli
Fallast ekki á bann við hvalaviðskiptum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.