Fallast ekki á bann við hvalaviðskiptum/auðvitað ekki!!!!!!

Fallast ekki á bann við hvalaviðskiptum
Innlent | mbl.is | 27.4.2010 | 13:56

Hvalveiðiskip Hvals hf. í Reykjavíkurhöfn. Íslensk stjórnvöld geta ekki fallist á Alþjóðahvalveiðiráðið kveði á um bann við milliríkjaviðskiptum með hvalaafurðir. Þá segir sjávarútvegsráðuneytið, að þeir kvótar sem lagðir hafa verið til fyrir Ísland í málamiðlunartillögu um hvalveiðar séu langt undir sjálfbærnimörkunum.

Formaður og varaformaður Alþjóðahvalveiðiráðsins hafa ákveðið að leggja fram tillögu í eigin nafni. Reiknað er með að hún verði tekin fyrir á ársfundi ráðsins í Agadir, Marokkó, í júní n.k. Í tillögunni er að finna málsgrein, sem ríki andstæð hvalveiðum höfðu lagt til, um að aðeins megi nota hvalaafurðir innanlands, sem væri í raun bann við milliríkjaviðskiptum og kæmi verst niður á hagsmunum smáríkja með lítinn heimamarkað.

Tillagan felur svo m.a. í sér kvóta þeirra ríkja sem stundað hafa hvalveiðar og gerir ráð fyrir árlegum kvótum fyrir Ísland á tímabilinu 2011-2020 upp á 80 langreyðar og 80 hrefnur.

„Íslensk stjórnvöld geta ekki fallist á umrætt bann við milliríkjaviðskiptum með hvalaafurðir. Í fyrsta lagi geta Íslendingar sem útflutningsþjóð sjávarafurða ekki fallist á að skorður séu settar á viðskipti með sjávarafurðir sem fengnar eru með sjálfbærum hætti. Í öðru lagi falla viðskipti utan valdsviðs Alþjóðahvalveiðiráðsins og er ráðið því ekki bært til að fjalla um þau. Jafnframt er ljóst að þeir kvótar sem lagðir hafa verið til fyrir Ísland, eru langt undir sjálfbærnimörkunum og er í því sambandi rétt að hafa í huga að ráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar hljóðar upp á 200 langreyðar og 200 hrefnur á ári," segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Þar kemur fram, að íslensk stjórnvöld leggi áherslu á að ekki verði teknar neinar ákvarðanir á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins í Agadir nema með almennu samkomulagi aðildarríkja þess, en fram að þessu hafi verið unnið á þeim grundvelli.

„Það þjónar ekki framtíðarhagsmunum ráðsins að freista þess að keyra í gegn ákvarðanir með atkvæðagreiðslu, enda væri það til þess fallið að auka enn á sundrungu meðal aðildarríkja ráðsins og leiða til falls þess," segir ennfremur.////þarna er enn eitt malið sem á að vaða með yfir okkur,þetta gengur ekki að lofa okkur ekki að veiða sjálfbært,við verum að gera allt til að afla gjaldeyris,það er nógur markaður fyrir þetta og við eigum að kynna þetta fyrir hinum sveltandi þjóðum,og svo annað ESB samþykkir ekki hvalveiðar en eitt dæmið sem sannnar að þangað höfum við ekkert erindi/Halli gamli


mbl.is Fallast ekki á bann við hvalaviðskiptum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 1045796

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband