Að upplýsa í óvissu !!!!!!

Að upplýsa í óvissu
Innlent | mbl | 28.4.2010 | 15:52

Farþegar víða um heim hafa þurft að bíða á flugvöllum eftir... Óhætt er að segja að eldgosið í Eyjafjallajökli sé orðið að martröð flugfélaga og flugfarþega. Gríðarleg röskun hefur orðið á flugi hér á landi vegna öskuskýsins, og hefur millilandaflug í Keflavík og í Reykjavík legið niðri í dag. Ástandið er rokgjarnt þessa dagana og er reynt að upplýsa farþega um breytingar á flugi eins fljótt og auðið er.

Sumir farþegar, sem hafa lent í töfum eða því að flugi hefur verið aflýst, hafa kvartað undan ónógri upplýsingagjöf. Vissulega er ástandið harla óvenjulegt um þessar mundir, og verður að taka það með í reikninginn.

Talsmenn Icelandair og Iceland Express segja að farþegar eigi að fá nýjustu flugupplýsingar beint í farsímann eða með tölvupósti. Þá er þeim bent að leita að upplysingum á vefsiðum felgana

Bæði félögin hafa þurft að breyta áætlunum sínum með skömmum fyrirvara. Segja má að þau vinni nú skv. neyðarskipulagi, þar sem askan frá Eyjafjallajökli getur lokað völlunum fyrirvararlaust. Það hefur leitt til þess að ferðum hefur verið aflýst, þeim seinkað eða vélum beint á aðra flugvelli.

Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir að undanfarna daga hafi staðan verið mjög óljós. „Upplýsingagjöfin til farþeganna hefur tekið mið af þessari óvissu. Það hefur verið nauðsynlegt að gera breytingar með stuttum fyrirvara,“ segir hann.

Stundum hafi menn beðið lengi með að tilkynna hvað verði um flug. Ástæðan sé sú að menn séu að bíða eftir að flugvellir opnist eða hvort einhverjar breytingar verði. „Þannig að ekki sé verið að gefa fólki þrenns konar mismunandi upplýsingar á klukkutíma fresti,“ segir Guðjón í samtali við mbl.is.

„Vandinn er fyrst og fremst sá að það er óvissa sem fylgir þessum veður- og öskuspám. Það er reynt að koma upplýsingum eins skipulega og skilmerkilega á framfæri eins og hægt er. Vegna þess að það auðveldar svo mikið okkar starfsfólki og okkar rekstri í svona ástandi að farþegar viti hvað er í gangi,“ segir Guðjón./////já þetta er vandaverk og ekki auðunnið og ber fólki að taka  því!! vonandi að menn læri á þessu,og standi að þessu betur næst ef verður,en þetta er ekki búið og það er treyst á að fólkið syni biðlund/Halli gamli


mbl.is Að upplýsa í óvissu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 1045685

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband