Menn eru stjörnuvitlausir“///kannski hafði Davíð bara rétt fyrir sér á Landsfundinum!!!!

Menn eru stjörnuvitlausir“
Innlent | mbl.is | 28.4.2010 | 23:34

Jóhann Páll fer hörðum orðum um stjórnarhætti Vilhjálms Egilssonar. „Menn eru alveg stjörnuvitlausir. Ef við veljum ekki að breyta þessu þjóðfélagi núna og þessu lífeyriskerfi fer illa. Ég vil ekki hugsa þetta til enda. Þetta er dapurlegt,“ sagði Jóhann Páll Valdimarsson, sjóðsfélagi í Gildi - lífeyrissjóði, eftir hitafund hjá sjóðnum á Grand Hóteli.

Krafa Jóhanns Páls og hátt í 40 sjóðsfélaga um stjórnin viki sæti vegna meintra afglapa í starfi var felld en þau tíðindi urðu á fundinum að Tryggvi Tryggvason sjóðsstjóri vék sæti.  

Líkir Vilhjálmi við Brezhnev 

Jóhann Páll beinir spjótum sínum að Vilhjálmi Egilssyni, formanni stjórnar sjóðsins, og sakar hann um að hafa virt lýðræðislega stjórnarhætti að vettugi. 

„Þetta er ósköp svipuð stefna og Brezhnev notaði á sínum tíma. Hann keyrði yfir fólkið. Það er ekkert lýðræðið. Vilhjálmur beitir fólk valdbeitingu. Hann er ekkert annað en Brezhnev. Þetta eru alvarleg orð en hann á það skilið. Ég er búinn að segja honum það,“ segir Jóhann Páll og vísar til Leoníds Brezhnev, fyrrverandi aðalritara sovéska kommúnistaflokksins.

Jóhann Páll er harðorður og fullyrðir að stjórn sjóðsins hafi látið undan þrýstingi frá stóru bönkunum og tekið ákvarðanir um fjárfestingar sem hafi til lengri tíma litið verið gegn hagsmunum sjóðsþega. Stjórnin hafi haldið áfram að fjárfesta í bönkunum þrátt fyrir vitneskju um að þeir stæðu ekki á eins sterkum grunni og af væri látið.

Náin tengsl stjórnarinnar og fulltrúa bankanna hafi þannig truflað eðlilega ákvarðanatöku.

Laxveiði með Kaupþingi

Máli sínu til stuðnings vitnar Jóhann Páll í 8. bindi skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis vegna bankahrunsins, nánar til tekið til kaflans um lífeyrissjóði. Þar segir á blaðsíðu 71:

„Árni Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gildis, segir að hann hafi sett sér þá reglu að þiggja ekki laxveiðiferðir en viðurkennir að einstaka starfsmenn í eignastýringu hafi farið í laxveiði með hans vitneskju:

„[K]annski ekki endilega með mínum vilja, en allavega hef ég svona óbeint leyft þeim það í einstaka tilvikum.“

 Í gögnum frá Kaupþingi kemur fram að Tryggvi Tryggvason, forstöðumaður eignastýringar Gildis, hafi farið í laxveiðiferðir á vegum Kaupþings.“////þetta á alltað taka i gegn og vel það,svona komast menn ekki upp með,við launþegar eigum einir að kjósa þarna stjórnir ,og fækka sjóðunum !!!Afvinnurekendur eiga þarna ekkert og þeir eiga því ekki að koma þarna að alls  ekki/maður fer að trúa því sem Davíð sagði á landsfundi okkar síðast um Vilhjálm han  er óferjandi maður/Halli gamli


mbl.is „Menn eru stjörnuvitlausir“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ólíkt ríkistjórninni eða seðlabankanum sem maður situr uppi með hverju sinni, þá getur fólk sem betur fer sagt sig úr sjóðnum og valið aðra sjóði ef það er óánægt. Þannig er hægt að láta peningana eða lífeyrinn tala.

Bjarni (IP-tala skráð) 29.4.2010 kl. 07:15

2 Smámynd: Árni Gunnarsson

Af hverju er ég hættur að verða undrandi þegar ég hlusta á sjálfstæðismann í afneitun?

Árni Gunnarsson, 29.4.2010 kl. 08:21

3 Smámynd: Haraldur Haraldsson

strákar þakka innlitið,en Bjarni satt segir þú að það er hægt að skipta en tekur bara nokkuð betra við,Ríkið er það eina sem sennilega hækkar greiðslur,við komumst ekki þangað!!! Árni þú mátt verða undrandi,Halli gamli er krítískur á alla einnig minn flokk,er það ekki i þinni bók/Kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 29.4.2010 kl. 10:26

4 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Við sitjum uppi með ýmsa fáráðlinga í ríkisstjórninni í flokkapólitíkinni.

Nágrímur og Nornin hafa hvort um sig hangið þar í 30+ ár að gera það sem þau gera best.... EKKI NEITT.

Óskar Guðmundsson, 29.4.2010 kl. 19:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 1045682

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband