3,67 milljarðar töpuðust/það er málað linni,þessum einleik stjórna lifeyrisjóðana!!!!

,67 milljarðar töpuðust
Innlent | mbl.is | 29.4.2010 | 9:30

Frá ársfundi Gildis í gærkvöldi. Örn Pálsson, formaður Landssambands smábátaeigenda, spurði á ársfundi lífeyrissjóðsins Gildis í gærkvöldi hvers vegna sjóðurinn hefði lánað Glitni banka víkjandi lán að fjárhæð 6,67 milljarða króna. Fram kemur á heimasíðu sambandsins að svörin hafi verið á þá leið að lánið hafi verið afskrifað.

Spurði Örn hver eða hverjir hefðu tekið ákvörðun um þetta lán, hver eða hverjir bæru ábyrgðina og hvað hafi legið til grundvallar ákvörðuninni.

Á heimasíðu landssambandsins segir, að í svari formanns stjórnar og framkvæmdastjóra hafi komið fram, að um sameiginlega ákvörðun hafi verið að ræða hjá stjórn og stjórnendum sjóðsins.  

Í ársskýrslu sjóðsins kemur fram að víkjandi lán hafi verið afskrifuð af fullu og ekki sé gert ráð fyrir að neitt fáist upp í þær kröfur. Segir á heimasíðu Landssambands smábátaeigenda, að  heildariðgjöld allra sjóðfélaga Gildis á síðasta ári var 3,53 milljarðar eða 160 milljónum lægri en það sem tapaðist.////þetta sínir okkur lífeyrisþegum að það er komin á þetta tími að við tökum völdin sjálf,við eigum þetta en ekki atvinnurekendur og svo skal það vera ,þarna verður að varða bylting eða sameina alla lífeyrisjóði og láta ríkið reka þá þeir hafa -haf bestu ávöxtun hingað til/Halli gamli 


mbl.is 3,67 milljarðar töpuðust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

hvernig er það,get ég sem lífeyrisgreiðandi ekki kært þessa stjórn og fylgifé til fjármálaeftirlitsins fyrir afglöp í starfi og óvarlega meðferð minna fjármuna hjá sjóðnum ? eða verð ég bara að sitja hjá og horfa á þessa vinnuveitendur braska með minn lífeyri ?

árni (IP-tala skráð) 29.4.2010 kl. 12:31

2 identicon

Þú getur skipt um lífeyrissjóð, þó getur þó ekki skipt yfir í eina sjóðinn sem hækkaði lífeyrinn (þrátt fyrir gríðarlegt tap), þ.e. LSR. Þannig getur þú látið peningana eða lífeyrinn tala, og sýnt stjórn sjóðsins að þú treystir þeim ekki fyrir lífeyrinum þínum.

Bjarni (IP-tala skráð) 30.4.2010 kl. 09:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 1045689

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband