Vilja skýrslu um kirkjuna og hrunið///spurning þetta með Þjóðkirkjan ?????

Vilja skýrslu um kirkjuna og hrunið
Innlent | mbl.is | 29.4.2010 | 17:23

Frá setningu Prestastefnu í Vídalínskirkju. Samþykkt var ályktun á prestastefnu í dag um að tekin verði saman skýrsla um þjóðkirkjuna og bankahrunið. Í skýrslunni verði m.a. leitast við að greina styrkleika og veikleika í störfum kirkjunnar gagnvart anda og iðju sem hér þreifst fyrir bankahrunið og þeim áföllum sem dundu á þjóð og einstaklingum við hrun bankanna.

Þá verði tillögur í skýrslunni um hvaða starfsþætti þjóðkirkjunnar þurfi að styrkja og hverju þurfi að breyta til að starf kirkjunnar verði í samræmi við köllun þjóðkirkju og til hags fyrir íslenskt samfélag.

Samþykkt önnur ályktun þar sem hvatt er til samstöðu, þolgæðis og vonar á erfiðum tímum. Útkomu rannsóknarskýrslu Alþingis er fagnað og er rannsóknarnefndinni þakkað fyrir  þann grunn sem skýrslan veiti til uppbyggingar og endurreisnar í íslensku þjóðfélagi.

„Hreinskilið og undanbragðalaust uppgjör skiptir nú afar miklu máli og vill Prestastefnan hvetja til þess að umbótaviljinn sem skýrslan vekur sé virkjaður.  Þjóðkirkjan áréttar mikilvægi bjartsýnnar lífsafstöðu, trausts og trúnaðar við kristin gildi og mun nú sem endranær hafa umhyggju, kærleika og réttlæti til grundvallar starfi sínu," segir m.a. í ályktuninni./////þetta er allt gott að kryfja þessu mál og einnig að taka skrefið til fulls með aðskilnað Ríkis og Kirkju þeim er ekki stætt á öðru þar sem það er Trúfrelsi í landinu og söfnuðir margir sem ekki tilheyra þessu að kallast Þjóðkirkja sem er Ríkisbragð að!!!! þetta vonandi verður krufið til mergjar einu sinni ennþá og reynt að komast hjá þessu en við sem erum i Fríkirkjum heimtum að allir sitji við sama borð ,er það ekki réttlæti/Halli gamli


mbl.is Vilja skýrslu um kirkjuna og hrunið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 1045721

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 43
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband