Lækka heimild til kaupa á ferðagjaldeyri/Hvað þýðir þetta?????

Lækka heimild til kaupa á ferðagjaldeyri
Innlent | mbl.is | 30.4.2010 | 5:59

Seðlabanki Íslands Nýjar reglur um gjaldeyrismál taka gildi í dag og samkvæmt þeim lækkar hámarksfjárhæð heimildar til kaupa á erlendum gjaldeyri í reiðufé vegna ferðalaga úr 500.000 krónum í hverjum almanaksmánuði í 350,000 krónur

Jafnframt hefur verið gerð breyting á sérstökum undanþágum til að taka af allan vafa um ólögmæti svokallaðra aflandsviðskipta.

Samkvæmt upplýsingum frá Seðlabankanum eru nýjar reglur um gjaldeyrismál fegnar út í samræmi við ákvæði lagaen þar er mælt er fyrir um að reglur um gjaldeyrismál skuli endurskoðaðar á sex mánaða fresti.

Fyrir utan að lækka hámarksfjárhæð til ferðagjaldeyris fela þær breytingar sem hafa verið gerðar á eldri reglum að mestu í sér orðlagsbreytingar til að tryggja samræmi í skýringu og túlkun þeirra.////þetta skilur efir fleiri spurningar en þetta svarar,hvap um ferðina sem keypt er hvað með Euro úti og svo framvegis ,þetta er ekki svo gott að skilja,eða hvað þýðir þetta fyrir okkur sem  er stór spurning,að taka bara út fyrir 350 þus td $ eru það bara 2713$ það ýtir undir svartan markað ef maður er í mánaðarferð/Halli gamli


 


mbl.is Lækka heimild til kaupa á ferðagjaldeyri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Það eru margir að mislesa þessa frétt. Það segir skýrt: reiðufé vegna ferðalaga úr 500.000 krónum í hverjum almanaksmánuði í 350,000 krónur. Sem þýðir að þú getur fengið 350 þúsund í hverjum mánuði sem gerir um 4,2 milljónir á ári í reiðufé. En getur notað kort eins og þú villt. Það er líka það sem flestir gera. Þeir eru ekki að þvælast með meira en 350 þúsun í gjaldeyri til útlanda í ferðalög. Þeir taka með sér kort.

Magnús Helgi Björgvinsson, 30.4.2010 kl. 11:09

2 identicon

ég er sammála Magnúsi hér að ofan,þetta breytir ekki neinu hjá fólki sem er á ferðalagi erlendis,allavega þekki ég ekki neinn sem ferðast með troðnar töskur af pappír (ég þekki reyndar enga vafasama einstaklinga sem flokkast hafa undir útrás)

árni (IP-tala skráð) 30.4.2010 kl. 12:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 1045718

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband