Óttast það versta /þetta er það versta sem fyrir gat komið/óhuggnanlegt mjög!!!!

Óttast það versta
Erlent | mbl.is | 2.5.2010 | 8:40

Lítið miðar í að stöðva olíulekann á Mexíkóflóa og óttast sérfræðingar það versta ef golfstraumurinn flytur olíubrákina í átt að Atlantshafinu. Viðbrögð stjórnvalda og olíufélagsins BP eru harðlega gagnrýnd þar sem talið er að ef fyrr hefði verið brugðist við hefði verið hægt að afstýra því stórslysi sem nú blasir við.
Þetta kemur fram í bandaríska dagblaðinu Washington Post í morgun.

Forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, ætlar að heimsækja strönd Mexíkóflóa í dag.

Óttast ýmsir á svæðinu um framtíð sína  enda ljóst að áhrifin eru gríðarleg á allan sjávarútveg og efnahag svæðisins almennt. „Þetta fólk, við höfum verið lamin niður, hörmungar eftir hörmunar," segir Matt O'Brien í viðtali við WP en viðskipti hans með rækju eru í hættu vegna olíulekans.

Bobby Jindal, ríkisstjóri Louisiana, mun hitta Obama í dag en Jindal hefur hótað því að allri ábyrgð verði varpað á BP sem var með olíuborpallinn á leigu. Sprenging varð á pallinum þann 22. apríl sl. og fórust ellefu starfsmenn í henni. Forstjóri BP, Tony Hayward, mun koma til Louisiana í dag og fara yfir stöðuna.

Óttast er að tjónið nú sé enn meira heldur en þegar risaolíuskipið Exxon Valdez strandaði undan strönd Alaska árið 1989 og olli mestu olíumengun í sögu Bandaríkjanna. Þegar hefur verið lýst yfir neyðarástandi í fjórum ríkjum: Mississippi, Alabama, Louisiana og Flórída.///////þetta er það versta sem menn hafa lent i og er illviðráðanlegt og ekki fyrir enda séð,þetta mun geta eyðilegt allar strendur þarna um ókomin ár og það er sko ekkert grín g ekki aftur tekið !!!við skulum vona að þetta verði stoppað áður en það er við ramman reip að draga,svona á alls ekki að geta komið fyrir ,þarna á að vera margfalt öryggi en ekki svona/Halli gamli


mbl.is Óttast það versta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1045778

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband