Tal auglýst til sölu /hvar stöndum við skiptum við þetta fyrirtæki?????

Tal auglýst til sölu
Viðskipti | mbl.is | 7.5.2010 | 10:19

TalAllt hlutafé í fjarskiptafyrirtækinu Tali (IP fjarskiptum ehf.) verður selt í opnu útboðsferli sem hefst með birtingu auglýsingar um miðjan maí. Teymi, móðurfélags Tals, er í eigu Nýja Landsbankans (NBI) og er bankinn skuldbundinn til að selja eignarhlut sinn í Tali vegna úrskurðar Samkeppniseftirlitsins.

Öllum fjárfestum sem uppfylla lagaskilyrði um fagfjárfesta stendur til boða að bjóða í hlutaféð,  öðrum en þeim sem hafa markaðsráðandi stöðu á fjarskiptamarkaði.

Áhersla verður lögð á að söluferlið verði opið, gagnsætt og auðskilið, að því er segir í tilkynningu. Verðbréfafyrirtækið Tindar verðbréf mun annast söluna.

NBI fer með 82 prósenta eignarhlut í Tali eftir að hafa tekið yfir félagið Fjallaskarð (áður Capital Plaza ehf.) sem var í eigu Jóhanns Óla Guðmundssonar, en það félag fór með tæplega 32 prósenta hlut í Tali. Þá á bankinn meirihluta í Teymi sem á 51 prósents hlut í Tali.

Teymi skuldbatt sig til þess að selja 51 prósents eignarhlut sinn í Tali með sátt sem það gerði við Samkeppniseftirlitið í júlí á þessu ári vegna samkeppnisbrota sem fyrirtækið varð uppvíst að sem meirihlutaeigandi í Tali. Sölutilraunir áttu að hefjast „sem fyrst“. Þær hafa þó ekki hafist, en Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því að áhugi sé á Tali meðal fjársterkra fjárfesta sem telja fyrirtækið eiga mikla möguleika.

Eignarhlutur NBI í bæði Teymi og IP Fjarskiptum (Tali) er undir Vestia ehf.,  dótturfélags Landsbankans.

Tal er þriðja stærsta fjarskiptafyrirtækið á Íslandi og varð til við samruna Hive og Sko árið 2008.

Gert er ráð fyrir að söluferlið, sem verður kynnt nánar með auglýsingu síðar, hefjist um miðjan maí og að því ljúki fyrir lok júní. /////það er kokmið aftan að okkur sem þarna verslum að mínu áliti,maður hélt að þetta væri þarna allt i lagi,Kannski er það ekki hjá neinu af þessu símafyrirtækjum/þetta er ekkert grín að svona skuli þetta fara og engin veit neitt/Halli gamli


mbl.is Tal auglýst til sölu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þessi frétt að selja eigi hlutabréf í IP-fjarskiptum (TAL) segir manni nákvæmlega ekkert um rekstur fyrirtækisyns.  Bara að eigendurinir hafi verið of skuldsettir og bankinn tekið af þeim hlutabréfinn og þar með fyrirtækið.

Svo verða hlutabréfin seld þeim sem lýst vel á reksturinn.

Þorsteinn Bjarki Ólafsson (IP-tala skráð) 7.5.2010 kl. 23:33

2 identicon

já, það að selja fyrirtæki þýðir ekki að reksturinn sé slæmur.

Þvert á móti þá eru núverandi eigendur skuldbundnir að selja hlutafé sitt og geta því ekki átt Tal lengur þótt þeir vildu það.

Kári (IP-tala skráð) 16.5.2010 kl. 00:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 1045730

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband