Skattar verði ekki hækkaðir í Reykjavík !!!!!!!

Skattar verði ekki hækkaðir í Reykjavík
Innlent | mbl.is | 15.5.2010 | 18:53

Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri og aðrir... Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík ætlar að standa vörð um grunnþjónustuna í borginni og forgangsraða í þágu fjölskyldna án þess að hækka skatta. Frambjóðendur flokksins kynntu stefnuskrá fyrir komandi kosningar í Hljómskálanum í dag.
 í tilkynningu frá flokknum segir að „skattar verði ekki hækkaðir í Reykjavík og gjöld fyrir grunnþjónustu verði áfram með þeim lægstu á landinu. Þá eigi að skapa aukin tækifæri til atvinnusóknar áframhaldandi framkvæmdum og átaksverkefnum og bættri þjónustu borgarinnar við fyrirtæki og frumkvöðla.“

Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri og oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík, sagði á kynningarfundinum í dag að borgarbúar verði að geta treyst því að Reykjavíkurborg standi með þeim. „Við höfum sýnt að það er hægt að standa vörð um grunnþjónustu Reykjavíkurborgar án þess að hækka skatta og án þess að stefna borgarsjóði í hættu. Við verðum að nýta krafta allra og vinna saman fyrir Reykvíkinga,“ segir Hanna Birna. 

Þá leggur Sjálfstæðisflokkurinn til að á næsta kjörtímabili verði hugað betur að lífsgæðum í hverfum borgarinnar og að íbúar fái aukin áhrif meðal annars með beinni kosningu í hverfisráð, atkvæðagreiðslu um forgangsröðun í fjárhagsáætlun og með beinni aðkomu að ákvarðanatöku.///////þetta gott fyrir okkur sem ekki getum borgað meira en orðið er, og reyndar alla,en það verðir einnig að halda því að ekki verði um samdráttur í skólum og starfsliðið þar verði ekki skert eins með annað sem þarf að gera  gagnvart börnum og okkur eldri borgurum/það er gott að spara mátulega en ekki um of,en þetta boðar gott fyrir okkur Borgarbúa og við skulum trúa þessu,/Halli gamli


mbl.is Skattar verði ekki hækkaðir í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

Hvað með að lækka þá um 30%? Þarf ekki að miða við þjóðartekjur? Sem hafa fallið um 30% til 40%?

Júlíus Björnsson, 16.5.2010 kl. 10:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045686

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband