Langmest verðbólga á Íslandi////er ekki mál til komið að láta af verðtryggingunni!!!!!

Langmest verðbólga á Íslandi
Viðskipti | mbl.is | 18.5.2010 | 9:52

Ísland sker sig úr í Evrópu þegar horft er til verðlags Ísland sker sig úr varðandi verðbólgu samkvæmt nýbirtum tölum um samræmda vísitölu neysluverðs í ríkjum á evrópska efnahagssvæðinu. Samkvæmt henni er verðbólgan á Íslandi 11,1% mæld á tólf mánaða tímabili í apríl.
Ungverjaland er næst í röðinni með 5,7% verðbólgu samkvæmt mælingum á samræmdri vísitölu neysluverðs.

Á vef Hagstofu Íslands kemur fram að samræmd neysluverðsvísitala, sem reiknuð er fyrir öll EES-ríkin, er svipuð og íslenska neysluverðsvísitalan. Umfangið er þó frábrugðið að tvennu leyti aðallega; útgjöld erlendra ferðamanna á Íslandi eru tekin með í grunn samræmdu EES-vísitölunnar en eru ekki í grunni neysluverðsvísitölunnar og útgjöld vegna eigin húsnæðis, sem eru í neysluverðsvísitölunni, eru ekki talin með í grunni samræmdu EES-vísitölunnar enn sem komið er.

Verðhjöðnun mælist 2,8% í Lettlandi og 2,5% á Írlandi. Að meðaltali er verðbólgan 1,5% í ríkjum Myntbandalags Evrópu og 2% í ríkjum Evrópusambandsins, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Evrópu, Eurostat, sem birtar voru í dag.//////þetta er hroðalegar tölur og við bara verðum að taka þessa verðtryggingu af i aföngum meðfram því að lækka verðbólguna,allir  sem skulda í íbúðum eða sitthverju munu missa sitt ef ekkert verður gert,höfuðsstóllin hækkar og hakkar þar til fólkið gefst upp,labbar ekki út skuldlaust ein og i USA heldur skuldar áfram og gert gjaldþrota og getur ekkert eignast meira/það verður að gera .arna eitthvað rótækt,ekki spurning,en lyferisjoðir eru þeir einu sem verða að verja sig/Halli gamli


mbl.is Langmest verðbólga á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 1045659

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband