Lög um Bjargráðasjóð samþykkt !!!!!

Lög um Bjargráðasjóð samþykkt
Innlent | mbl.is | 18.5.2010 | 19:36

Sauðfé undir Eyjafjöllum. Alþingi samþykkti í dag frumvarp um breytingar á lögum um Bjargráðasjóð með 46 samhljóða atkvæðum. Með frumvarpinu er komið á móts við bændur sem orðið hafa fyrir búsifjum vegna eldgossins í Eyjafjallajökli.

Samkvæmt eldri lögum mátti árlegt fjárframlag ríkissjóðs til Bjargráðasjóðs ekki vera meira en 80 milljónir á ári. Það liggur hins vegar fyrir að tjón sem orðið hefur vegna eldgossins er talsvert meira. Lögin fela í sér að heimilt verður að greiða meira úr ríkissjóði í sjóðinn en þessar 80 milljónir.

Lögin fela einnig í sér að heimilt er að greiða beingreiðslur til bænda þó að framleiðsla kúabænda á hamfarasvæðunum raskist eða liggi niðri um tíma. Talið er að með því megi draga úr líkum á því að bændur selji beingreiðslurétt frá lögbýlum sínum og bregði með því búi varanlega.

Einnig er í lögunum að finna ákvæði sem heimilar landbúnaðarráðherra að greiða beingreiðslur til sauðfjárbænda þó að þeir neyðist til að draga úr framleiðslu vegna gossins.//////þetta eru þörf lög nú við þetta náttúrufyrirbæri Gos sem er að hrella bændur og búalið á Suðurlandi ,mikið er það gott að samþykkja svona með öllu greiddum atkvæðum og það mun sina  i verki samstöðu okkar i svona malum /Halli gamli 


mbl.is Lög um Bjargráðasjóð samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 1045676

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband