Áfram tryggð lyf/en allt gert til að gera málin erfiðari !!!!!!

Áfram tryggð lyf
Innlent | mbl.is | 19.5.2010 | 19:07

Lyfjatöflur. Myndin er úr safni. Heilbrigðisráðuneytið segir að tryggt sé að enginn sjúklingur sem njóti lyfjameðferðar vegna þunglyndis verði án lyfja í kjölfar nýrrar reglugerðar um breytta greiðsluþátttöku vegna þunglyndislyfja.

Ráðuneytið segir að Frumtök, samtök frumlyfjaframleiðenda, hafi sent frá sér tilkynningu vegna reglugerðarinnar. Þar sé gengið lengra í fullyrðingum og hræðsluáróðri gagnvart viðkvæmum sjúklingahópi en hægt sé að láta ósvarað. 

Reglugerðin hafi í för með sér að frá og með 1. júní næstkomandi verði aðeins hagkvæmustu þunglyndislyfin áfram niðurgreidd. Lyfseðlar sem þegar hafi  verið gefnir út og séu fjölnota, haldi gildi sínu til 1.október 2010. Markmiðið með breytingunum sé að draga úr notkun dýrari þunglyndislyfja og minnka þannig kostnað ríkisins vegna lyfja um 200-300 milljónir á ári.

„Ekki er rétt, eins og haldið er fram í tilkynningu Frumtaka, að um það bil 14 þúsund einstaklingar verði „lyfjalausir” við gildistöku reglugerðarinnar. Allir sjúklingar haldnir þunglyndi fá eins og áður lyf við sjúkdómi sínum. Ef hagkvæmustu lyfin gagnast einhverra hluta vegna ekki viðkomandi sjúklingi sér læknir til þess að sjúklingnum verði tryggt lyfjaskírteini og þannig niðurgreiðsla vegna dýrari lyfja, sem sjúklingurinn þarf á að halda.

Hvergi er notkun og kostnaður vegna þunglyndislyfja meiri en á Íslandi. Þá er notkun dýrari þunglyndislyfja hlutfallslega meiri hér á landi en á Norðurlöndunum. Sem dæmi er notkun á algengasta þunglyndislyfinu, Cipralex, 24% af heildarnotkun þunglyndislyfja á Íslandi en aðeins 7% í Svíþjóð.

Notkun þunglyndislyfsins, Oropram, sem er mun ódýrara, er 9% af heildarnotkun þunglyndislyfja hér á landi en 32% í Svíþjóð.

Umræddri reglugerð er ætlað að spara verulegar upphæðir fyrir þjóðarbúið um leið og öryggi sjúklinga er tryggt. Sama leið hefur verið farin í öðrum lyfjaflokkum og reynst vel. Má það ekki síst þakka skilningi og góðu samstarfi við lækna og samtök sjúklinga,“ segir á vef heilbrigðisráðuneytisins.//////unnið hefur verið að því að manni er sagt að gera tryggingar einfaldari og þar á meðal einnig lyfjamálin,en undanfarið 1,5 ár a hefur þetta með lyfin heldur farið á hinn vegin að engin skilur neitt ,allt er á huldu með hvað og hvernig þetta á að framkvæma og menn vita ekkert i sinn haus ,svo aðfarir eru blessuðum sjúklingunum ekki að skapi !! sem von er vita bara ekkert hvernig fara á að þessu ,Heilbrigðisráðherra veit það valla sjálf/Halli gamli


mbl.is Áfram tryggð lyf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 1045655

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband