Undirbúa verkföll/hvað annað er i stöðunni?????

Undirbúa verkföll
Innlent | mbl.is | 25.5.2010 | 16:32

Frá ársfundi Alþýðusambands Íslands nýlega. „Það er mat fundarins alls og ég held að það séu engar ólíkar raddir í því að menn eru mjög ósáttir við það hvernig ekki hefur verið brugðist við þeim aðstæðum sem uppi eru í atvinnumálum,“ segir Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ, um yfirstandandi formannafund samtakanna.
Hann segir menn undirbúa verkföll. 

Halldór segir, að ekki hafi verið brugðist við þeim tillögum og ábendingum sem ASÍ hafi komið með varðandi það með hvaða hætti ætti á að takast á við þau úrlausnarefni sem við stöndum frammi fyrir. Þá eiga menn einkum og sér í lagi við atvinnumálin og atvinnuleysi.

„Menn gagnrýna ríkisstjórnina en svo sem líka pólitíska kerfið í heild sinni fyrir að vera vanmáttugt og í raun og veru ekki tilbúið til þess að takast á við þau úrlausnarefni sem eru að okkar mati langstærstu pólitísku úrlausnarefnin þessa dagana. Þannig auðvitað beinist þessi gagnrýni að ríkisstjórninni fyrst og fremst því hún er náttúrulega sá sem á að leiða þetta pólitíska kerfi en menn svo sem gagnrýna líka að það sé ekki mikil hjálp frá öðrum í þeim efnum.“

- Hvernig hefur samvinna stjórnvalda og ASÍ verið? 

„Við höfum náttúrulega svo sem bent á það áfram og ítrekað. Við höfðum ásamt Samtökum atvinnulífsins á sínum tíma frumkvæðið að því að það var farið í þessa vinnu við stöðugleikasáttmálann.

Þótt að þar hafi eitt og annað skilað sér með einhverjum hætti þá hefur hann alls ekki verið að skila því sem væntingar okkar stóðu til og við kennum þar ekki síst stjórnvöldum og ríkisstjórninni hvernig til hefur tekist. Menn eru sammála því að ríkisstjórnin virðist hafa ákaflega lítið forræði á þessum málum sem mestu skipta.“

- Þarf jafnvel nýjan stöðugleikasáttmála?

„Við höfum sagt að við ætlum ekkert efnislega að segja upp þessum sáttmála enda hefur það í sjálfu sér engan tilgang. Það er hins vegar alveg ljóst að samræðan í okkar aðildarfélögum og á þessum fundi formanna gengur út á það að það eru lausir kjarasamningar í haust.

Menn eru einfaldlega að ræða að það sé þá eðlilegast að fara að undirbúa þá samningagerð og nýta þá þær aðstæður og þá möguleika sem þá skapast,“ segir Halldór og vísar til haustsins.

„Menn segja líka gjarnan að það sé eins og stjórnvöld og aðrir taki okkur ekki alvarlega nema þegar á reynir í tengslum við kjarasamningagerð og þar er náttúrulega ljóst að þar getur allt orðið undir. Þá er okkar staða önnur en hún er á miðju samningstímabili.“//////við öll launþegar ellilífeyrisþegar og allt láglaunafólk,höfum ekki aðra aðstöðu ??Hvað annað er i boði ekkert,hvert eigum við að leita en ekki okkur viðsemjanda ,og nýjan þjóðarsáttmala hækka bara lægstu launin og hinir verða að biða lengur/við reistu´m á þetta og það ætti að vera hægt að gera ef vilji er fyrir hendi en þetta er langi sótt og vinstri stjórnin er að falla á þessu mjög svo fljótt/Halli gamli


mbl.is Undirbúa verkföll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Sigurgeirsson

Nú eru flugfreyjur hjá British Airways í verkfalli. Flugfélag sem var rekið með tapi fyrir gos og ekki bætti Eyjafjallajökull reksturinn. Það er tími fyrir verkföll en ekki þegar allt er að hrynja. Það sama á við hér.

Jón Sigurgeirsson , 25.5.2010 kl. 22:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 1045676

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband