Verð fyrir þjónustu sérfræðilækna hækkar /það er ekkert sem neinu nemur, ef ekki fylgir böggull skamrifin ????

Verð fyrir þjónustu sérfræðilækna hækkar
Innlent | mbl.is | 1.6.2010 | 18:11

1,9% samningsbundin hækkun sérfræðilækniskostnaðar kemur til framkvæmda í dag. Heilbrigðisráðuneytið segist undanfarið hafa átt í viðræðum við Læknafélag Reykjavíkur um að félagið taki þátt í því með ráðuneytinu að lækka lækniskostna fjárlögum þessa árs er gert ráð fyrir 1300 milljóna króna lækkun á lækniskostnaðarliðnum sem að stærstum hluta er þjónusta sérfræðilækna og rannsóknir. Að auki er 700 milljóna króna halli frá fyrra ári.

Heilbrigðisráðuneytið segir, að farið  hafi verið fram á samstarf um ýmsar aðgerðir sem ætlað hafi verið að lækka kostnað, þar á meðal 10% lækkun einingaverðs.

„Læknafélagið samþykkti viðræður um niðurskurð á kostnaði við sérfræðilæknaþjónustu. Jafnframt var samþykkt að meðan viðræður stæðu yfir yrði frestað um tvo mánuði 1,9% hækkun sem átti að koma til framkvæmda 1. apríl s.l. Læknafélag Reykjavíkur taldi þær tillögur sem heilbrigðisráðuneytið lagði fram í megindráttum óaðgengilegar," segir á heimasíðu ráðuneytisins.

Þá kemur fram, að hækkunin hafi þau áhrif að hlutur sjúklinga hækki að meðaltali um 1,2%. Þó sé hækkunin nokkuð minni hjá börnum, öldruðum og öryrkjum.

„Heilbrigðisráðuneytið mun leita annarra leiða til að draga úr kostnaði vegna sérfræðiþjónustu og væntir þess að unnt verði að hafa samráð við sérfræðilækna um útfærslu þeirra aðgerða," segir ráðuneytið/////þetta er ekki mikil hækkun ,og ekki til að gera neitt afgerandi þarna ,að fólk leyti ekki til sérfræðinga sem er mjög gott mál ef með þarf,en þetta með að leita annar ráð með að til að draga úr kostnaði er það sem við viljum fá að fylgjast með ,þar getur margt komið til að fækka komum til þessara nauðsynlegu þjónustu/Halli gamli


mbl.is Verð fyrir þjónustu sérfræðilækna hækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 1045754

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband