Hrun í sölu dráttarvéla/ekki gott fyrir landbúnaðin okkar !!!!!!

Hrun í sölu dráttarvéla
Innlent | mbl.is | 2.6.2010 | 12:11

Bændur reyna nú að nýta þann dráttarvélakost sem þeir hafa...Engar dráttarvélar voru nýskráðar í maí, samkvæmt tölum frá Umferðarstofu. Algjört hrun í sölu nýrra dráttarvéla hefur orðið frá því í ágúst 2008. Maí og júní eru vanalega metmánuðir í nýskráningu dráttarvéla en nú ber svo við að engin ný vél seldist í nýliðnum mánuðiFrá árinu 2005 til 2007 seldust á bilinu 40-66 nýjar dráttarvélar í hvorum mánuði fyrir sig en þeim fækkaði niður í 30 vélar í maí 2008 og svo 20 vélar í júní sama ár.

Í fyrra seldust svo 3 nýjar dráttarvélar í maí og 6 vélar í júní. Allt síðasta ár voru 29 dráttarvélar nýskráðar en til samanburðar voru 383 vélar skráðar árið 2007.

„Þetta er bara lýsandi fyrir þjóðfélagið allt, menn eru ragir við fjárfestingar og skuldbindingar sem fylgja svona dráttarvélakaupum og eru að fresta eðlilegri endurnýjun og viðhaldi,“ segir Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands.

Hann segir nokkuð mikla eftirspurn eftir notuðum dráttarvélum en framboðið frekar lítið þannig að þegar góð vél sé auglýst seljist hún mjög fljótt.

„Það er mjög vont ef endurnýjun dráttarvéla frestast lengi, færri notaðar vélar eru þá í umferð og við horfum fram á uppsafnaða endurnýjunarþörf sem skellur á af meiri þunga þegar fram líður.“

Haraldur segir að góð dráttarvél geti enst í 10-12 ár. „Þetta hefur þróast mikið í það að bændur eiga 1-2 aðalvélar en svo treysta margir orðið á verktaka sem taka að sér jarðvinnslu og slíkt, þá er ekki þörf á að bændur eigi eins margar dráttarvélar og áður.“

Haraldur segir að bændur eins og aðrir hafi lent illa í efnahagskreppunni og eigi margir í greiðsluerfiðleikum. Hann telur að hlutfall fjársterkra búa og svo hinna sem eiga í fjárhagserfiðleikum sé svipað og í öðrum atvinnurekstri. „Þetta er hinsvegar viðkvæm staða þegar fyrirtækið er í raun heimili þitt um leið.“/////þetta er alvarlegt mál mjög við verðum að hafa landbúnaðinn i lagi og vel það,við getum ekki farið að fitja inn þessar vörur sem við getum sjálf framleitt,þetta er því miður svo að þessa býli ber ekki kostnaði af að endurnýja tækin sem er nauðsyn,kannski geta menn sameinað kaup á  vélum meira þar sem það er viðkomið,en svona er ekki hægt að koma fram við landbúnaðinn,fremur en útgerðina/Halli gamli


mbl.is Hrun í sölu dráttarvéla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Sæll Halli minn! Það er sama hvort verið er að plata heiðarlega rekinn landbúnað eð heiðarlega rekinn sjáfarútveg?

Hvorugt á rétt á sér!

En þessi frétt hljómar undarlega og hreinlega passar ekki við raunveruleikann?

Víða í fréttaflutningi eru maðkar í mysunni. Við megum ekki trúa blindandi á fréttaflutning á Íslandi klíkunnar? Útvarp Saga er sú eina sanna! M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 2.6.2010 kl. 14:34

2 Smámynd: Þórarinn Baldursson

Þetta er ljóta bullið í þér kona góð.

Þórarinn Baldursson, 2.6.2010 kl. 19:15

3 identicon

Voðalega finnst mér leiðnilegt að lesa svona andlaust blogg,  þar sem heilu fréttirnar eru Copy/paste,   á maður kannski eftir að sjá alla mbl  síðuna á blogginu þínu?

Guðjón Guðvarðarson (IP-tala skráð) 2.6.2010 kl. 20:09

4 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Guðjón var eittver að biðja þig að lesa þetta/nei ekki hann eg,ef þetta truflar þig skaltu bara skrifa eitthvað skemmtilegt sjálfur/Kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 2.6.2010 kl. 20:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 1045676

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband