„Kostar okkur ekkert að doka við og hugsa"//satt er orðið!!!!!

Kostar okkur ekkert að doka við og hugsa"
Innlent | mbl.is | 8.6.2010 | 18:43

Þráinn Bertelsson „Við eigum að gera okkur nýja stjórnarskrá, það er löngu tímabært, en sem betur fer erum við ekki að falla á tíma með það verkefni," sagði Þráinn Bertelsson óháður þingmaður í umræðum um stjórnlagaþing á Alþingi í kvöld. „Það kostar okkur ekkert að hugsa, það kostar okkur ekkert að doka við og reyna að skilja það ákall sem okkur hefur borist frá þjóðinni.

Þráinn vísaði í umsögn frá Borgarahreyfingunni um þá tillögu sem hann lagði sjálfur fram í allsherjarnefnd um að það yrði stofnað stjórnlagaþing og sagði að gerð nýrrar stjórnarskrár væri mikilvæg í sjálfsskoðun og uppbyggingu þjóðfélagsins eftir hrunið og jafnframt tilvalið tækifæri til að setja af stað umræðu um þær grunnstoðir og gildi sem þjóðin vilji miða sig við.

Því sé mikilvægt að víðtæk sátt náist um gerð nýrrar stjórnarskrár. „Víðtæk sátt. Er það ekki það sem þetta blæðandi þjóðfélag okkar vantar? Það er mín skoðun, mín skoðun er sú að við eigum að leita að víðtækri sátt, reyna að skilja eðli lýðræðisins og vinna í þess anda, einkum og sér í lagi þegar kemur að því sem á að vera sameiginlegur  grundvöllur þjóðfélags, sem verður kannski ekki mitt þjóðfélag til lengdar, en þjóðfélag afkomenda minna og barnabarna.

„Ég vil að þau búi í þjóðfélagi sem er samkomulag allrar þjóðarinnar, allra stjórnmálaflokka, en ekki bara hugarburður þingmanna Samfylkingar og Vinstri grænna."/////þetta eru orð i tíma töluð og ber að virða ,það er ekki asinn sem gyldir þarna ,við verðum að flýta okkur hægt og ger vel,það er bara .að og skoða hvað þjóðin vill,þetta er og verður að vanda ekki spurning/Halli gamli


mbl.is „Kostar okkur ekkert að doka við og hugsa"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1045715

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband