Um 22 þúsund á vanskilaskrá/er nokkur furða,nei það er gert ekkert í þvi !!!!

Um 22 þúsund á vanskilaskrá
Innlent | mbl.is | 9.6.2010 | 11:08

Börn sem tengjast ekki fréttinni beintTæplega 22 þúsund einstaklingar eru á vanskilaskrá samkvæmt nýjum upplýsingum frá Creditinfo. Um er að ræða upplýsingar í dag, ekki gögn frá fyrri tíma. Fjölgun á vanskilaskrá hefur verið gríðarlega mikil að undanförnu. Hægt er að tala um að þetta séu 22 þúsund heimili ekki einstaklingar.
þar sem flestir þeirra sem eru í vanskilum eru með fjölskyldur og sjaldgæft er að hjón eða sambúðarfólk séu bæði í alvarlegum vanskilum.

11 þúsund börn eiga foreldra í alvarlegum vanskilum

Um ellefu þúsund börn á Íslandi eiga foreldra í alvarlegum vanskilum. Til samanburðar má benda á að íbúar Kópavogs eru um 15 þúsund talsins. 

Í dag eru tæplega 8 þúsund einstaklingar sem stefna að óbreyttu í alvarleg vanskil þó þeir séu ekki í alvarlegum vanskilum í dag. 

Creditinfo er einnig með upplýsingar sem benda til þess að að þeir sem þegar hafa fengið aðstoð þurfi meiri aðstoð.

56% þeirra sem hafa þegar fengið aðstoð segjast þurfa meiri aðstoð en 16% aðspurðra svarar hvorki né. 23% telja ólíklegt að þeir þurfi frekari aðstoð en einungis 5% er viss um að þurfa ekki frekari aðstoð. Um er að ræða rannsókn sem unnin var af Capacent Gallup fyrir Creditinfo.

Af þeim sem ekki þurfa aðstoð eru flestir barnlausir og ungir eða eldra fólk, það er 55 ára og eldra.

Það eru því 30-40% heimilanna sem þurfa á aðstoð eða frekari aðstoð að halda. 85% þeirra sem hafa nýtt sér aðstoð en þurfa aðstoð áfram eða telja sig þurfa aðstoð strax eða mjög fljótlega.

 78% af skuldum í vanskilum eru frá bönkum og fjármálafyrirtækjum.

Svipað hátt hlutfall þeirra sem tóku þátt og eru í vanskilum segja að þeir myndu semja um skuldirnar eða hætta að borga skuldirnar. 25,1% segjast myndu semja en 25% segja að þeir muni hætta að borga. 6,4% líta á það sem lausn  við fjárhagsvanda heimilanna að flytja úr landi. Samkvæmt tölum Hagstofunnar er það ungt fólk, það er yngra en fertugt, sem hefur flutt úr landi síðustu mánuði.

Mikilvægara að greiða símareikninginn heldur en tómstundir barna

Það sem fólk telur mikilvægast er að eiga fyrir mat en fleiri telja mikilvægara að geta greitt símareikninginn heldur en að geta greitt fyrir tómstundir barna sinna. Þetta kom fram í tölum sem Rakel Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Creditinfo, kynnti fyrir fjölmiðlum í dag.

Creditinfo hefur áhuga á að vinna með fjármálafyrirtækjum og aðstoða þá einstaklinga sem eru á vanskilaskrá. Hægt sé að upplýsa þá sem eru á skrá hvernig hægt er að komast af skránni. Með því sé hægt að hvetja fólk til þess að komast af vanskilaskrá.

 Creditinfo telur eðlilegt að fjármálafyrirtæki breyti lánaskilmálum, að fjölbreytni verði aukin. Til að mynda sé þeim umbunað sem standa í skilum og skipti þar ekki máli hvort viðkomandi er tekjuhár eður ei. /////////þetta er ekkert grín,og maður vill engu einum um kenna ,en það verður að létta eitthvað á  þessu ,það sjá allir sem vilja ,en ekki þessu Ríkisstjórn hún lokar fyrir þessu augum og segir að allt sé í vinslu sem er ekki bara bull,og aftur bull,þetta er kannski það sem hreina vinstri stjórn hefur á sinni dagskrá að ger alla þurfalinga og allt i neðstu þrepum eða aftur i gömlu góðu dagana ,sem þeir tala um,lifa bara á landsins gæðum,það er mottóið þeirra að mínum skilningi/Halli gamli


mbl.is Um 22 þúsund á vanskilaskrá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband