Liggur ekki á stjórnlagaþingi/enn og aftur ítrekað!!!!

Liggur ekki á stjórnlagaþingi
Innlent | mbl.is | 9.6.2010 | 11:59

Birgir Ármannsson Birgir Ármannsson kallaði frumvarp um stjórnlagaþing „sérstakt gæluverkefni hæstvirts forsætisráðherra“ í umræðum á þingi nú undir hádegi. Birgir kvað meira liggja á málum sem vörðuðu heimili og fyrirtæki í landi

Birgir Ármannsson, Sjálfstæðisflokki, kallaði frumvarp um stjórnlagaþing „sérstakt gæluverkefni hæstvirts forsætisráðherra“ í umræðum á þingi nú undir hádegi. Tók hann undir orð Þráins Bertelssonar, óháðs þingmanns, frá í gær að frumvarpið mætti bíða haustsins. Taldi hann að forgangsraða yrði málum á þinginu með öðrum hætti nú þegar styttist í þinglok.

Birgir kvað meira liggja á málum sem vörðuðu heimili og fyrirtæki í landinu en stjórnlagaþingi. Taldi hann óeðlilegt að frumvarp um stjórnlagaþing fengi þann forgang sem því er veittur.

Sagði hann enn mikinn ágreining um málið og ekki væri að sjá að einu sinni stjórnarþingmenn sýndu málinu mikinn áhuga á. Sagði hann í því samhengi að þingflokkur vinstri grænna hefði lítið haft sig í frammi í málinu. Afstaða flokksins lægi hreinlega ekki fyrir. Taldi hann að jafnvel gæti farið svo að málið verði afgreitt vegna þess að þingmönnum þætti það „skárra en ekkert.“ Sagði hann að þetta þættu honum ekki viðhlítandi vinnubrögð í málinu./////en og aftur kemur í ljós að þetta gæluverkefni Jóhönnu er að gera Alþingi erfitt fyrir áð á að klára þetta án þessa að það sé um það fjalla nóg ,þetta þarf sinn tíma og liggur ekkert á ,allt annað biður og það  er aðkallandi að Bjarga heimilum og fyrirtækjum og að á að hafa forgang,og ekkert annað/Halli gamli


mbl.is Liggur ekki á stjórnlagaþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 16
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045781

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband