Óttast landflótta/næsta víst að það verði í stórum stíl !!!!

Óttast landflótta
Innlent | mbl.is | 11.6.2010 | 12:09

Lilja Mósesdóttir Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna, óttast landflótta ef laun ríkisstarfsmanna verða skert of mikið. Hún segir að tillagan um launafrystingu geti aðeins gengið, ef hún nái jafnt til ríkis- og einkageirans.
Mér finnst ansi langt gengið að refsa ríkisstarfsmönnum fyrir kreppu sem rekja má til einkageirans. Ég vil skoða launaþróun mjög nákvæmlega á einkamarkaðinum áður en ég samþykki launafrystingu - hvað þá launalækkun - í ríkisgeiranum,“ segir Lilja. Hún bætir við að fara þurfi varlega í niðurskurð hjá hinu opinbera á krepputímum. Annars sé hætta á því að niðurskurðarkreppa taki við af fjármálakreppunni.

Lilja óttast að verið sé að fara svipaða leið og í upphafi tíunda áratugarins, þegar ríkisstjórnin samþykkti bráðabirgðalög til að afnema leiðréttingu launa ríkisstarfsmanna í samræmi við einkageirann. „Þetta varð til þess að ríkisstarfsmenn sem höfðu fjárfest í menntun voru á mun lægri launum en fólk með millimenntun í einkageiranum. Margt af þessu fólki flúði land. Það treysti sér ekki til að standa undir námslánum og fasteignaskuldum á þeim launum sem voru þá í boði.“

„Ég óttast landflótta og fátækt meðal láglauna ríkisstarfsmanna. Við megum ekki skerða laun ríkisstarfsmanna langt umfram það sem er að gerast í einkageiranum,“ segir þingmaðurinn og bætir við að ríkisstarfsmenn séu ekki minna skuldsettir en aðrir.

Lilja bendir á að lánin hækki í samræmi við verðbólgu. „Með því að frysta laun búum við til ákveðið misgengi ofan á það sem að nú þegar hefur orðið, á meðan við tökum ekki verðtrygginguna úr sambandi eða setjum þak á hana,“ segir Lilja. „Ég óttast að launafrysting á sama tíma og við erum með verðtryggð fasteignalán mun auka misgengi á milli launa og lána.“

Þingmaðurinn segist geta sætt sig við almenna launafrystingu ef hún nái ekki bara til ríkisgeirans. „Það yrði þá gert með því að lofa launþegum að jafnvel afnema vertrygginguna í áföngum,“ segir Lilja að lokum.//////við skulum ekkert alhæfa með Ríkistarfsmenn frekar en annarra sem vinan í einkageiranum,þetta auðvitað á við hvortveggja ,það gæti byrjað i því opinbera ,svo okkur hinum það hefur verið gert með lögum áður,Bjarni Ben. geði  þetta 1967 eða svo tók vísitöluna úr sambandi og hækkaði ekki nema lægstu launin í 2 ár að mig minnir,allt varð vitlaust,eg þá´verkstjóri orðin á sömu launum og þeir sem eg stjórnaði,og svona var þetta upp eftir öllu !!! en það ber auðvitað að laga þetta núna hja´þeim lægst launuðu ekki spurning,en þetta með að flýja land er meir af atvinnuleysinu ,einnig kannski ef þetta gengur eftir með frystingu launa/Halli gamli


mbl.is Óttast landflótta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 1045682

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband