Saga Breiðholts rakin á bæjarhóli/ þetta mjög svo gott og fróðlegt!!!!!

Saga Breiðholts rakin á bæjarhóli
Innlent | mbl.is | 11.6.2010 | 15:28

Áslaug Friðriksdóttir og Kjartan Magnússon Á bæjarhóli Breiðholtsbýlisins, sem Breiðholtshverfið er kennt við, hefur Reykjavíkurborg nú látið reisa skilti þar sem saga Breiðholtsbýlisins er rakin í máli og myndum allt frá því er Breiðholt kom undir Viðeyjarklaustur árið 1395 þar til íbúahverfin risu í í landi Breiðholts á árunum 1960 til 1980.

Meðal fróðleiksmola má nefna að bæjarstjórn Reykjavíkur keypti jarðirnar Breiðholt, Ártún og Árbæ árið 1906 til þess að tryggja sér aðgang að vatni Elliðaánna fyrir vatnsveitur bæjarins. En árið 1923 var Breiðholt orðið hluti af lögsagnarumdæmi Reykjavíkur. Hið forna bæjarstæði Breiðholts ásamt kirkju og kirkjugarði var friðlýst árið 1981, samkvæmt fréttatilkynningu.

„Menningar- og ferðamálaráð hefur beitt sér fyrir átaki í menningarmerkingum undanfarið með nýju og samræmdu útliti eins og þegar má sjá við Höfða og í görðum Lækjargötu og Fríkirkjuvegs við Bernhöftstorfu, í Mæðragarði, Hallargarði og Hljómskálagarði. Kjartan Magnússon hrinti verkefninu úr vör og Áslaug Friðriksdóttir núverandi formaður ráðsins hefur einnig lagt því lið.

Öll skiltin eru með fróðlegri sögu og skemmtilegum gömlum ljósmyndum og eru bæði á íslensku og ensku. Ráðið beitti sér fyrir að gerð var rannsókn til að kortleggja þörfina á merkingum og komu rúmlega 500 tillögur úr rannsókninni.

Í kjölfarið það til  samkeppni um samræmt útlit menningarmerkinga í borginni og varð  Finnur Malmquist, grafískur hönnuður fyrir valinu. Minjasafn Reykjavíkur hefur lagt til fróðleik þann er lesa má af skiltunum og myndirnar koma bæði frá Ljósmyndasafni Reykjavíkur og Þjóðminjasafninu. Garðyrkjustjóri hefir fundið þeim stað og komið í jörð. Fleiri menningarmerkingar á vegum ráðsins eru í smíðum sem koma upp á næstunni," segir í fréttatilkynningu.////þetta er mjög svo gaman og gott starf sem þara hefur verið unnið og gaman, ekki bara fyrir okkur Breiðhyltinga heldur alla sem i R.vík búa,ekki vissi maður þetta þegar maður flutti hingað 1976 og hafið að orði oft er þetta var i byggingu að þegar maður var að selja Málningu hingað uppeftir að aldrei færi maður i Gólanhæðir eins og gárungarnir kölluðu þetta en hér er  gott að búa og ekki siður þegar maður hefur lesið þetta allt næstum frá landnámi/Halli gamli


mbl.is Saga Breiðholts rakin á bæjarhóli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045812

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband