Gefur skilaboðunum gaum/að sjálfsögðu gerir hann það,og betrumbætir eftir því!!!

Gefur skilaboðunum gaum
Innlent | mbl.is | 28.6.2010 | 17:53

Gísli Marteinn Baldursson. Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, segir í yfirlýsingu á heimasíðu sinni að hann muni gefa góðan gaum þeim skilaboðum sem kjósendur flokksins hafi sent sér með útstrikunum í borgarstjórnarkosningunum og muni reyna að bæta það sem betur megi fara í störfum sínum.

Hins vegar hafi útstrikanirnar langt í frá einhver formleg áhrif.

Þá rifjar hann upp að árið 2005 hafi prófkjör Sjálfstæðisflokksins verið eitt það stærsta sem haldið hafi verið á Íslandi og flokkssystkin sín verið ánægð með þá athygli sem flokkurinn hafi fengið í kjölfarið. „Á landsfundi sem haldinn var í miðri prófkjörsbaráttunni, þegar auglýsingaflóðið stóð sem hæst, var mikil ánægja með þetta stóra prófkjör sem 12.500 Reykvíkingar tóku þátt í. Svei mér þá ef sjálfstæðismenn hældust ekki svolítið um af ‘glæsilegu prófkjöri’ og báru hróðugir saman við prófkjör hinna flokkanna.“ Nú bregði hins vegar svo við að landsfundur Sjálfstæðisflokksins hafi álykta að þetta stóra prófkjör hafi ekki verið gott og sömu einkunn fái önnur stór og glæsilega prófkjör flokksins.

„Raunar hafi þau verið svo slæm að þeir sem kepptu um efstu sætin, og ráku því stærstu og dýrustu baráttuna, eigi að hugsa sinn gang. Engar áhyggjur eru viðraðar í þessari ályktun um að prófkjörin hafi skaðað kjörna fulltrúa í störfum sínum, eða að þeir sem lögðu framboðunum lið hafi reynt eða getað haft áhrif á störf okkar sem borgarfulltrúar eða þingmenn.“

Gísli Marteinn segir það ekki hafa verið neina launung að hann hafi ekki haft neina burði til að fjármagna stórt framboð í prófkjörinu 2005. Hann hafi treyst algjörlega á framlög fólks og fyrirtækja og hafi skilað uppgjöri þar að lútandi í nóvember í fyrra.

„Ég fékk vissulega fjárframlög frá fyrirtækjum til að reka prófkjörið 2005, eins og tugir eða hundruð manna og kvenna sem tóku þátt í stjórnmálum þá. Einstakir styrkir til mín voru hvorki í hópi þeirra hæstu, né voru háir styrkir mjög margir. Það er hinsvegar sjálfsagt að allir þeir sem hafa tekið þátt í stjórnmálum horfi inn á við og skoði hvort samviska þeirra sé hrein.

Þá segist Gísli Marteinn ekki hafa fengið neinar lánafyrirgreiðslur, kúlulán né önnur óvenjuleg lán.  Hann bendir á að hann hafi verið kosinn í tvígang til að gera Reykjavík að betri borg og muni nýta öll viðbrögð við störfum sínum, jákvæð sem neikvæð, til að styrkja sig í því starfi///////þetta er bara sennilega alveg rétt athugað hjá Gísla,að skoða málin og gera betur og bæta það sem mönnum finnst hann hafa gert órétt,sem er ekki annað en margur gerði og segir ekki starfi sínu lausu,það er svo erfitt að gera þetta svona upp að leifa mönnum ekki að bæta sig og það vel,það bara skoðast í næstu kosningum,það verða  hanski margir sem þetta þurfa að gera fyrir næstu kosningar um það er ekki deilt, en að gerast svo umdeildur eins og á hann er borið er ,er ekki gott og ber að láta hann  njóta vafans,ef með þarf,eða hvað????/Halli gamli


mbl.is Gefur skilaboðunum gaum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 9
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 1045696

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband