Versta veðrið í fyrramálið /Við þessu verða menn að bregaðst !!!!!

Versta veðrið í fyrramálið
Innlent | mbl.is | 30.6.2010 | 21:52

Mjög slæm spá er við suðurströndina á morgun Veður er tekið að hvessa nú þegar við suðurströndina en mun ná hámarki í fyrramálið, að sögn veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. „Veðrið verður hvað verst við suðurströndina í fyrramálið en svo lægir seinnipartinn.“ Spáð er austanátt og 18-23 metrum á sekúndu við suðurströndina

Nú er vindur kominn í 12 m/s á Vatnsskarðshólum og 15 m/s á Fagurhólsmýri. Bálhvasst er í Vestmannaeyjum.

„Það mun hvessa smám saman í nótt og verður mestur vindur í fyrramálið og fram yfir hádegi.“

Ekki er ráðlegt fyrir ferðafólk með tjaldvagna, hjólhýsi eða fellihýsi að vera á ferð á þessu svæði meðan veðrið gengur yfir.

„Óveðrið mun ná yfir svæðið sunnan við Öræfajökul og vestur eftir. Veðrið verður ekki svo hrikalega slæmt undir Eyjafjöllum, kannski 13-18 m/s.“í verstu hviðunum.

Lægðinni fylgir mikil rigning en draga fer úr vindi seinnipartinn og verður veður sennilega orðið skaplegt undir kvöld. Þó dálítið hvasst, jafnvel 15 m/s á stöku stað.

Þá mun veður versna á Norðvesturlandi eftir hádegi og getur vindur orðið 13-20 m/s á Breiðafjarðarsvæðinu.

Á höfuðborgarsvæðinu verður nokkur blástur og rigning með köflum. //////við þessu verða menn að bregðast þetta getur orðið mjög kviðótt og margt fokið í 20 m/s eða meira geta rokur farið i 30 m/s þetta tökum við alvarlega sem vitum hvað veður er,og þekkjum /Halli gamli


mbl.is Versta veðrið í fyrramálið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 1045714

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband