Spánverjar heimsmeistarar/ Páll kolkrabbi hafði rétt !!!,til hamingju Spánn!!!!

Spánverjar heimsmeistarar
Íþróttir | mbl.is | 11.7.2010 | 21:06

Spánverjar fagna heimsmeistaratitlinum.Andres Iniesta, miðjumaðurinn frábæri, tryggði Spánverjum heimsmeistaratitilinn í knattspyrnu þegar þeir lögðu Hollendinga, 1:0, í framlengdum úrslitaleik á Soccer City vellinum í Jóhannesarborg í kvöld.

Iniesta skoraði sigurmarkið þegar fimm mínútur voru eftir af framlengingu þegar hann skoraði af stuttu færi eftir að hafa fengið sendingu frá varamanninum Cesc Fabregas. Stuttu áður var varnarmanninum John Heitinga vikið af velli en enski dómarinn Howard Webb hafði svo sannarlega í nógu að snúast. Hann lyfti rauða spjaldinu einu sinni á loft og 14 sinnum því gula.

Spánverjar eru þar með bæði Evrópu- og heimsmeistarar en það er í annað sinn í sögunni sem það gerist. Þjóðverjar afrekuðu það árið 1974.//////maður varað fara a´taugum svo var spennan mikil en svona fór,!!! þó svo eg heldi með Hollendingum,en þetta bara gott fyrir knattspyrnuna eftir gott H.M. mót sem Afríka helt með stæl og sæmd og við óskum bara Spáni til hamingu öll,þetta var frábært allt og fór bara vel!!!!/Halli gamli


mbl.is Spánverjar heimsmeistarar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 1045633

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband