Fyrirmyndar auðmaður/margir gætu af honum lært !!!!!

Fyrirmyndar auðmaður
Veröld/Fólk | AFP | 15.7.2010 | 19:28

Ævisaga Carlos Slim, ríkasta manns í heimi, er ný komin út.Mexíkóinn Carlos Slim er ríkasti maður heims. Hann lætur það þó ekki stíga sér til höfuðs heldur skammtar sér aðeins um 24 þúsund Bandaríkjadala í mánaðarlaun. Það jafngildir tæpum þremur milljónum íslenskra króna sem blikna, ef svo má segja, í samanburði við hefðbundin auðmannalaun.

Slim sló Bill Gates úr toppsæti ríkustu manna heims á þessu ári. Hann er 70 ára gamall og eru eignir hans metnar á um 53,5 milljarða bandaríkjadala. Fyrir þá upphæð gæti hann auðveldlega keypt sér rándýra lúxusbíla en þess í stað ekur hann um á Chevrolet Suburban.

Slim gaf nýlega út ævisögu sína. Þar kemur m.a. fram að hann hafi staðið í viðskiptum frá blautu barnsbeini. Þannig hófst viðskiptaferill hans með sælgætissölu þegar hann var aðeins tíu ára gamall.

Þeir sem þekkja til Carlos Slim segja hann lifa mjög einföldu lífi. Hann hafi aldrei verið gefinn fyrir prjál né flottræfilshátt. Maðurinn sé nokkurs konar fyrirmyndar-auðmaður.

Slim er verkfræðingur að mennt og kominn af vel stæðri fjölskyldu. Hann ólst upp í Mexíkó en faðir hans kemur frá Líbanon.

Helst hefur hann beint sjónum sínum að fjarskiptamarkaði en árið 1990 keypti hann Telmex símafyrirtækið sem áður hafði verið ríkisrekið.

Vegur hans hefur síðan aukist mjög í viðskiptum. Gaman er að segja frá því að Slim segist passa sig á því að stunda aldrei viðskipti við pólitíkusa. /////af þessu gætu margir lært svo maður tali nú ekki um okkar auðmenn ef segja má svo sem flesti ef ekki allir hafa borist á svo um munar, og komnir nú i rannsókn margir vegna meintra svika og svo framvegis,en er svona og það ber að hafa i huga að vera mikill bitnesmaður þíðir ekki að það eigi að misnotast/Halli gamli


mbl.is Fyrirmyndar auðmaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 1045676

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband