11 þúsund manns fengu of háar tryggingabætur/þarna inni kemur fjármagntékjuskattur sem var hækkaður i 18%

11 þúsund manns fengu of háar tryggingabætur
Innlent | mbl.is | 26.7.2010 | 15:25

 Heildarniðurstöður endurreiknings á lífeyri og tengdum bótum hjá Tryggingastofnun ríkisins liggja nú fyrir. Alls fengu 11 þúsund bótaþegar of mikið greitt, samtals 4,3 milljarðar króna, og 5 þúsund bótaþegar fengu of lítið greitt, samtals 1,7 milljarðar. Heildarfjárhæð endurreiknað

Greiðslur til lífeyrisþega á árinu 2009 hafa verið bornar saman við tekjuáætlanir og skattframtal fyrir sama ár. Niðurstaðan segir til um hvort lífeyrisþegi hafi fengið greitt út í samræmi  við þann rétt sem hann hafði á árinu 2009. 

Að sögn Tryggingastofnunar er fjöldi lífeyrisþega rúmlega 47 þúsund manns. Ellilífeyrisþegar eru um 30 þúsund og örorkulífeyrisþegar  um 17 þúsund. 66% lífeyrisþega eða 31 þúsund manns fengu greiðslur innan eðlilegra frávika.  24% lífeyrisþega eða 11 þúsund manns  fengu ofgreiðslur umfram eðlileg frávik. 10% lífeyrisþega eða 5 þúsund manns eiga inneignir umfram eðlileg frávik.

Tryggingastofnun segir, að eins og undanfarin ár sé munurinn lítill á milli atvinnu- og lífeyrissjóðstekna í tekjuáætlunum 2009 og í skattframtali. Hins vegar hafi vextir, verðbætur og arður verið verulega vanáætluð í tekjuáætlunum lífeyrisþega, eða um 75%. Það sé megin skýringin á ofgreiðslum lífeyris og tengdra bóta vegna ársins 2009 en um 22 þúsund lífeyrisþegar, sem fengu vexti og verðbætur greindu ekki frá þeim í tekjuáætlunum.

Af 4,3 milljarða króna ofgreiðslum vegna ársins 2009 eru um 3,3 milljarðar  vegna fjármagnstekna, en um 1 milljarður vegna atvinnu- og lífeyrissjóðstekna (0,4 atvinnutekjur og  0,6  lífeyrissjóðstekjur).

Næstu daga fá  lífeyrisþegar sent bréf með niðurstöðum uppgjörsins. Í því bréfi eru jafnframt upplýsingar frá ríkisskattstjóra um breytingar sem hafa orðið á tekjum innan ársins 2009.

Niðurstöður uppgjörs verða aðgengilegar fyrir lífeyrisþega á þjónustuvef Tryggingastofnunar, tryggur.is, eftir kl. 15 á morgun.s lífeyris og tengdra bóta er um 47 milljarðar króna////maður er alltaf jafn hissa á þessum yfirborgunum ,menn mega ekkert eiga af peningum ,ekki einu sinni fyrir Útförinni sinni 2-3 milljónir króna þa´kemur hækkaður fjarmarktekjuskattur þar 18% og talað um að hækka í 20% so er gamla fólkinu sagt að selja eignir sýnar og leigja bara eig svo peningana á banka og refsingin kemur þarna,er þetta i lagi nei það er það ekki,hvernig er spanaði hadið uppi svona spyr maður bara /Halli gamli


mbl.is 11 þúsund manns fengu of háar tryggingabætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 1045653

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband