Ríkið getur ekki rift samningnum ??????

Ríkið getur ekki rift samningnum
Innlent | Morgunblaðið | 27.7.2010 | 10:00

Forsvarsmenn Magma Energy og HS Orku kveða samninga sína...Forsvarsmenn Magma Energy og HS Orku segjast ekki sjá hvernig hið opinbera eigi að geta stöðvað kaup Magma Energy Geysis Green Energy í HS Orku.

Júlíus Jónsson, forstjóri HS Orku, kveðst ekki vita til þess að nokkur leið sé hinu opinbera fær nema að setjast aftur að samningaborðinu við fyrirtækin eða að beita eignarnámi.

„Ég er nú ekki lögfræðingur en mér vitanlega er engin leið til þess nema bara þjóðnýting. Þetta er allt gert, eins og ég skil það, samkvæmt lögum og gildandi reglum. Það er ekkert nema að setja lög um þjóðnýtingu,“ segir Júlíus sem telur þannig eignarnám einu mögulega leið ríkisvaldsins til að eignast nýtingarrétt Magma Energy á auðlindunum.

Að íslenskum rétti er eignarréttur stjórnarskrárvarinn. Í 72. gr. hennar eru þó upptalin skilyrði eignarnáms en þau eru þríþætt. Almenningsþörf þarf að krefjast eignarnáms, setja þarf sérstök lög um eignarnámið og fullt verð þarf að koma fyrir eignina.

Þeir lögfræðingar sem Morgunblaðið hefur talað við kveða ríkið ekki geta rift samningnum og nýtingarrétt Magma Energy á tiltekinni auðlind ekki uppfylla skilyrði stjórnarskrárinnar um almenningsþörf til eignarnáms.

 

Fínt fyrirkomulag

Ásgeir Margeirsson, forstjóri Magma Energy á Íslandi, telur móðurfélagið vilja halda auðlindinni í almannaeigu. „Magma finnst það fínt fyrirkomulag, mjög eðlilegt og gott, að auðlindirnar séu í almannaeigu og þær séu leigðar. Það er bara í fínu lagi,“ segir Ásgeir sem kveðst ekki átta sig á því hvernig ríkisstjórnin eigi að ógilda eða rifta samningum um Magma Energy.

 

„Katrín Júlíusdóttir hefur réttilega bent á það að ríkisstjórnin er ekki aðili að þessum samningi. Samningurinn sé milli tveggja fyrirtækja og þess vegna geti ríkisstjórnin ekki rift samningnum. Atli Gíslason hefur bent á að það eigi ekki að rifta heldur ógilda, ég veit ekki hvernig það á að gerast, ég hef ekki þekkingu á því. Þetta er bara samningur sem er samkvæmt lögum.“

Vill beita eignarnámi

Atli Gíslason, þingmaður Vinstri grænna, telur að ríkið eigi að taka hlut Magma Energy eignarnámi reynist samningarnir ekki ólögmætir. „Hann gengur gegn tilgangi laga um erlenda fjárfestingu og gengur líka gegn EES-reglum. Ef það gengur ekki þá vil ég bara að þessi hlutur sé tekinn eignarnámi með sérlögum eða hvernig sem það mál virkar,“ segir Atli sem kveðst viss um ólögmæti samningsins og telur sænska fyrirtækið málamyndagerning til að komast hjá EES-reglum.

 

„Þetta er alger málamyndagerningur bara til þess að fara framhjá ákvæðum laga og markmiði þeirra. Það er ólögmætt og slíkir samningar hafa ekkert gildi,“ segir Atli.á hlut Geysis Green Energy í HS Orku/////allir  sem  vilja sjáð þetta er fyrirfram sett á,laggirnar til að dreifa huganumn fra´því sem nauðsinlegt er að gera fyrir fólkið i landinu Heimilin og fyrirtækin og að koma hjólunum af stað svo allt fari i sæmilegt far,þetta er notað til þessaa  að dreifa þeirri umræðu og þurfa ekki að taka á málum,þetta er sniðug- og það sjá að  allir sem vilja,svona var hægt að stöðva þegar tími var til en engi áhugi þá,bara bíða og setja svo þetta upp,að við værum að selja landið,það er búið að bjóða ríkinu forkaupsrett ef selt yrði og einnig til umræðu að stytta timan i 30 ár,svo þetta er ekki það sem  veri er að taka um,sala á auðlindum bara það er stórir peningar i malunum/Halli gamli


mbl.is Ríkið getur ekki rift samningnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 44
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband