Frumvarp hamlar samkeppni ///þetta er ekki i lagi Ráðherra?????

Frumvarp hamlar samkeppni

Neytendasamtökin telja að með lagafrumvarpi landbúnaðarráðherra um mjólkuframleiðslu sé verið að koma í veg fyrir að samkeppni geti orðið á markaðnum á nýjan leik. Samkvæmt frumvarpinu varðar það sektum að markaðssetja mjólkurafurðir úr umframmjólk.

Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, lagði fram frumvarp á Alþingi í sumar um viðurlög brjóti menn gegn ákvæðum laga um markaðssetningu mjólkur. Samkvæmt frumvarpinu er lögð 110 króna sekt á mjólkursamlag fyrir hvern mjólkurlítra sem samlagið setur á innanlandsmarkað sé mjólkin frá framleiðanda sem ekki hefur greiðslumark.

Sama gildir ef samlagið setur á markað mjólkurafurðir sem unnar eru úr mjólk frá framleiðendum sem er umfram greiðslumark. Frumvarpið er komið langleiðina í gegnum Alþingi. Fyrstu umræðu lauk aðfararnótt 16. júní en enginn þingmaður tók til máls.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd fjallaði um málið og vísaði því til annarar umræðu, sem fór fram í lok júní, þó engar umsagnir frá hagsmunaðilum hafi þá legið fyrir.

Nú hafa Neytendasamtökin birt umsögn um frumvarpið á vef sínum. Þar kemur fram að samtökin leggjast eindregið gegn frumvarpinu. Þau telja að með því verði komið í veg fyrir að samkeppni geti orðið á nýjan leik á markaði með mjólkurafurðir þegar brýnt er að auka frelsi innan greinarinnar.

Kúabændur hafi getað selt framleiðslu umfram greiðslumark til Mjólku, sem veitti Mjólkursamsölunni samkeppni. Frumvarpið komi í veg fyrir slík viðskipti. Þar að auki hafi Kaupfélag Skagfirðinga yfirtekið Mjólku og með samstarfi KS og Mjólkursamsölunnar sé búið að loka hringnum og í raun ríki einokun á markaðnum.nei þetta er ekki i lagi Jón Bjarnason ráðherra og "Trúður" innan gæsalappa,en svo aðferðir eru ekki hægt,það sjá lleiri sem  vilja einokun er ekki lengur inni myndinni og verður ekki liðið,maður boktsaflega atlar að ganga fra´landbúnaðinum !!!!!,og er þetta þó það eina sem hann lærði og á að kunna,en þessa stafi hann og V.G, er svona að eyðileggja allt sem betur má fara ,samkeppni er nauðsin,en hann skilur ekki kallin  eða vill það ekki??? /Halli gamli


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 1045801

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband