Segir ráðherra sýna vanvirðingu á lögum og Alþingi/ átti ekki öll spilling að vera búin???

Segir ráðherra sýna vanvirðingu á lögum og Alþingi
Innlent | Morgunblaðið | 28.8.2010 | 7:30

Pétur Blöndal. Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sem sæti á í félags- og tryggingamálanefnd Alþingis, gagnrýnir mjög alvarlega hvernig staðið hefur verið að málum við ráðningu framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs og íhlutun félags- og tryggingamálamálaráðherra.Það er ólíðandi að þetta gerist aftur og aftur, fyrst við ráðningu í embætti umboðsmanns skuldara og núna hjá Íbúðalánasjóði að ráðherra sé að hlutast til um og grípa inn í ferli, sem mælt er fyrir um í lögum. Það er stjórn Íbúðalánasjóðs sem ræður framkvæmdastjórann, ekki ráðherrann,“ segir Pétur.

„Mér sýnist að stjórnin sé að brjóta þau lög sem um hana gilda með því að gera annað en lögin kveða á um,“ bætir hann við.

Ráðherra beindi þeirri hugmynd til stjórnar ÍLS í bréfi sl. fimmtudag að skipa valnefnd, sem geri tillögu til stjórnar um ráðningu framkvæmdastjóra úr hópi umsækjenda. Pétur segir að hvergi sé kveðið á um slíka valnefnd í lögum um sjóðinn. Þar segi afdráttarlaust að það sé stjórnarinnar að velja framkvæmdastjóra ÍLS.

„Það er ótrúlegt að heyra það frá stjórnarformanni sjóðsins að ráðherra hafi sent erindi um að gera ætti eitthvað annað en stjórnin ætlaði sér að gera,“ segir Pétur.

„Þessi vanvirðing ráðherra á lögum og Alþingi er ekki líðandi.“

Virðist vera nýlunda

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og varaformaður Félags- og tryggingamálanefndar, segir að ekki hafi verið ákveðið að taka ráðningu framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs á dagskrá í nefndinni. ,,Það er í höndum stjórnar að ráða framkvæmdastjóra. Nú virðist hafa orðið klofningur í stjórninni en þau virðast einnig hafa viljað ná samstöðu í þessu máli. Það er mjög óheppilegt að ekki er búið að skipa framkvæmdastjóra því staða sjóðsins er erfið og mikil vinna framundan,“ segir hún.

 

Aðspurð segir Sigríður Ingibjörg að hugmynd ráðherra um skipun valnefndar virðist vera nýlunda en hún þekki ekki hvort fordæmi séu fyrir slíku.//átti ekki öll spilling að vera bak og burt ,eða hvað,eg er ekki að hneykslast bara nú, hefi alltaf gert þegar menn hafa ekki gert rétta í þessum málum !!einnig mínir menn ,sem þeir reyndu þó að fela en tókst ekki alltaf!! en þetta er klúður sem er með vilja og meðkvittni algjörlega gert ,ekki spurning og við auðvitað hneyksluð,sem vera ber,þetta er ekki í lagi með þennan blessaða Ráðherra Árna Pál það virðist elta hann uppi hneykslisverk!!!!/Halli gamli


mbl.is Segir ráðherra sýna vanvirðingu á lögum og Alþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband