Siglt eftir sjávarstöðu/þetta mun ávalt vera fyrir hendi þegar Haustar og vetrar!!!!!!

Siglt eftir sjávarstöðu
Innlent | mbl.is | 6.9.2010 | 14:56

Herjólfur strauk botninn í mynni Landeyjahafnar í gærkvöldi. Síðdegis í dag er von á nýrri siglingaáætlun Herjólfs sem byggð verður á flóðatöflunni. Vegagerðin reiknar með að siglt verði eftir þeirri áætlun næstu daga þar til dýpkunarskip hefur dýpkað innsiglinguna Landeyjahafnar. Búist er við að hægt verði að hefja dýpkun nú síðar í vikunni.

Siglingastofnun er nú að taka saman upplýsingar um sjávarstöðu við Landeyjahöfn næstu daga. Kristín H. Sigurbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs Vegagerðarinnar, sagði að starfsmenn Siglingastofnunar muni merkja við ákveðna „glugga“ miðað við sjávarstöðu og annað.

Skipið getur mögulega farið allt að tvær ferðir í slíkum „glugga“. Eimskip mun síðan fara yfir töfluna í samráði við skipstjóra Herjólfs. Í framhaldi af því verður gefin út tímabundin siglingaáætlun sem mun gilda fram undir næstu helgi.

Herjólfur mun því sigla á öðrum tímum en samkvæmt núgildandi áætlun þessa daga, svo fremi sem veður hamlar ekki för. Sem kunnugt er féllu niður þrjár ferðir ferjunnar á laugardaginn var vegna óveðurs. Breytingar á sjávarbotni réðu engu þar um.////það var búið að vara við þessu af reyndum mönnum og á það ekki hlustað,þessi vetur veður ekkert öðru vísi en hefur verið og þetta endar ,eða að siglt veður til Þorlákshafnar?? en veturinn er svona við suðurströndina ein og annarstaðar haugasjór og sandburður mikill,auðvitað ber a'ð skilja það og það er ekki heldur alltaf veður til að dýpkunarskip geti athafnað sig svo þetta verður erfitt og dýrt,nú en Þorlákshöfn er til staðar/Halli gamli  


mbl.is Siglt eftir sjávarstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 1045700

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband