Aðför að þeim fátækustu/ "bragð er að þá barnið finnur" segir máltækið!!!

Aðför að þeim fátækustu
Innlent | mbl | 8.9.2010 | 22:42

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. Ríkisstjórnin hefur staðið fyrir aðför að þeim sem höllustum fæti standa í þjóðfélaginu, að mati Gylfa Arnbjörnssonar forseta ASÍ. Gylfi sat borgarafund um fátækt í Ráðhúsinu í kvöld en hann segir sambandið munu taka upp hanskann fyrir efnalítið fólk í kjarasamningunum í haust.
Mér fannst þetta góður fundur. Margt sem þarna kom fram er í samræmi við okkar málflutning og kröfur. Hvernig sem menn vilja gagnrýna verkalýðshreyfinguna og hennar störf er það nú einu sinni þannig að það var Alþýðusambandið sem samdi um það í febrúar 2008 að hækka lægstu laun mjög mikið. Samhliða því tryggðum við að það yrðu miklar hækkanir hjá bæði örorku- og ellilífeyrisþegum og jafnframt í atvinnuleysisbótum.“

Náðu fram 32% hækkun lægstu launa 

Gylfi víkur því næst að árangri ASÍ í síðustu kjaraviðræðum. 

„Við kláruðum síðan okkar kjarasamning. Þegar upp er staðið höfum við hækkað lægstu laun um 32% á þessu samningstímabili, 38.000 krónur í lágmarkslaunum plús hækkun í skattleysismörkum, til viðbótar við þá verðtryggingu sem við sömdum um árið 2006.

Hins vegar hefur ríkisstjórnin, bæði síðasta og þessi sem nú er, ákveðið að frysta bætur almannatrygginga.

Það er auðvitað mikið áhyggjuefni og við lýstum áhyggjum yfir því að það væri gert enda er þetta veikasti hópurinn í samfélaginu, tekjulega séð. Þessi aðför er enn upp á teningnum á næsta ári af hálfu ríkisstjórnarinnar. Alþýðusambandið hefur komið því á framfæri við ríkisstjórnina að við munum ekki sætta okkur við það aftur að þessi hópur verði látinn afskiptur enn einu sinni.“

- Þannig að þið munuð halda þessu á lofti í kjaraviðræðum í haust?

„Já, það er alveg klárt mál. Það er krafa okkar félagsmanna að það verði staðið vörð um eðlilegar hækkanir hjá þessum hópum.“////þó við séum að skíða i ASÍ annað slagi og almennt verkalyssfélög þá er þeim als ekki als varnað ,ein og við,lesum hér hjá Gylfa ,þetta hefur maður sagt áður her á bloggi og þeir sem mynna hafa dragast afturúr og það mikið,þessir hópar verða að fá kjarabót og það eru raun ein og hann segir eiga það inni og vel það ,það getur ekki verið að þessu verði ekki sinnt en ekki hækka alla efstu uppúr það er einmitt það sem  er hættulegt,kannski krónutala geti gengið á alla skoðast bara/Halli gamli


mbl.is Aðför að þeim fátækustu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 9
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 1045696

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband