Atvinnuleysi 7,3% í ágúst/því miður ekki réttar tölur,það er meira!!!!og á eftir að versna með haustinu ekki spurning!!!

Atvinnuleysi 7,3% í ágúst
Innlent | mbl.is | 13.9.2010 | 12:38

 Skráð atvinnuleysi í ágúst 2010 var 7,3% en að meðaltali 12.096 manns voru atvinnulausir í ágúst. Í júlí mældist atvinnuleysi 7,5% og svarar þróunin milli mánaða til þess að atvinnulausum hafi fækkað um 473 mans að meðaltali.

Vinnumálastofnun segir, að yfirleitt batni atvinnuástandið frá ágúst til  september m.a. vegna árstíðasveiflu. Í september 2009 var atvinnuleysi 7,2% og minnkaði úr 7,7% í júlí. Vinnumálastofnun áætlar að atvinnuleysið í
september minnki og verði á bilinu 6,9%‐7,3%.

Vinnumálastofnun bárust tvær tilkynningar um hópuppsagnir í ágúst þar sem 45 manns var sagt upp störfum. Alls fengu 36 launamenn greitt úr Ábyrgðarsjóði launa í ágúst, þar af 22 starfandi í verslun og  flutningastarfsemi.//maður heldur með réttu að þessar tölur séu ekki réttar því miður ,þetta er mikið meira margir ekki á skra´og allt gert til þess að skrá þá ekki,en samt er þetta ekki gott og það sem  við vitum að þetta mun fjölga þegar haustar  og vetra !!!,r enda ekkert  gert til að kom atvinnuvegunum af stað ,það vitum við öll sem fylgjumst með,Alþingi og .eirs em eiga að koma þessu a kppinn eru i allt öðru tala um það sem  þeir bara  vildja ekki að bjarga þeim sem eru að missa sitt eða kom hjólunum af stað,nei allt annað' skal hafa forgang!!!!/Halli gamli


mbl.is Atvinnuleysi 7,3% í ágúst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Svo eru nú reyndar allnokkrir öruggglega að vinna þrátt fyrir að vera á bótum, eins lame og það er. Ekki gleyma því.

Davíð (IP-tala skráð) 13.9.2010 kl. 17:43

2 identicon

Meira af svona jákvæðni Halli gamli...það er það sem okkur íslendingum vantar

Helgi Rúnar Jónsson (IP-tala skráð) 13.9.2010 kl. 23:43

3 identicon

Mér skildist að fólk án vinnu hefði rétt til bóta. En eins og Davíð bendir á, þá er líka nokkuð um að fólk vinni og sé á bótum líka.

En það skiptir kannski ekki öllu máli við að stúdera vandamálið, að því gefnu að við getum miðað okkur við aðrar þjóðir (og þá skiptir vinnumynstur máli), sem og að við getum stúderað tölurnar eins og þær voru í fyrri mánuðinum. Það má til dæmis með réttu líta á þetta sem vísbendingu um að ástandið sé að skána.

Fyrir skemmtilega tilviljun datt mér einmitt í hug að líta á atvinnuleysistölur í dag. Þá fann ég Twitter tengil sem birtir daglegar tölur, að því er virðist frá DataMarket.

http://twitter.com/atvinnuleysi

Þannig að þetta eru góðar fréttir, þrátt fyrir að það fólk sem tilheyri prósentunni hafi það vitaskuld skítt, og þrátt fyrir að það sé alltaf ákveðinn hluti sem annaðhvort svíkur út bætur eða fær ekki sínar með réttu.

Helgi Hrafn Gunnarsson (IP-tala skráð) 14.9.2010 kl. 00:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband