Nýtt helgarblað í frídreifingu í október/það má gefa þessu tíma,það er þörf á að, fjalla hutlaust um hlutina og póltíkina!!!

Nýtt helgarblað í frídreifingu í október
Innlent | mbl.is | 27.9.2010 | 5:45

Haus nýja blaðsins. Nýtt helgarblað kemur út í október. Blaðið heitir Fréttatíminn og verður prentað í um 82.000 eintökum og dreift á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri auk sértækrar dreifingar á öðrum stöðum landsins. Fréttatíminn mun koma út árla föstudagsmorgna.

Fréttatíminn mun flytja nýjustu fréttir, ítarlegar fréttaskýringar um málefni líðandi stundar og leggja sérstaka rækt við viðtöl við áhugavert fólk af öllu tagi.

Eigendur Fréttatímans er starfsmenn blaðsins.  Nákvæm grein verður gerð fyrir hópnum í fyrsta tölublaði, að því er fram kemur í fréttatilkynningu um útkomu blaðsins.

Ritstjóri er Jón Kaldal, fréttastjóri Óskar Hrafn Þorvaldsson og framkvæmdastjóri Teitur Jónasson. Meðal blaðamanna eru Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir, fyrrum ritstjóri 24 stunda, Auður Eva Auðunsdóttir, fyrrum ritstjóri tímaritsins Hann/Hún og Jónas Haraldsson fyrrum fréttastjóri DV og ritstjóri Viðskiptablaðsins. Fjölmargir landsþekktir blaðamenn eru í hópi lausapenna blaðsins.

"Ég tel að það sé djúp þörf fyrir útbreitt blað sem enginn vafi leikur á um að eigi sig sjálft. Við, sem erum að baki Fréttatímanum, tilheyrum ekki viðskiptasamsteypu, stjórnmálaflokki eða einhverjum þrýstihópi. Við erum engum háð nema sjálfum okkur og auðvitað því að lesendur hafi áhuga á blaðinu. Við viljum að Fréttatíminn verði blað fólksins," segir Jón Kaldal, ritstjóri Fréttatímans.

Brot blaðsins er hefðbundið dagblaðabrot. Prentun og dreifing er í höndum Landsprents og Árvakurs////margur mundi segja að nóg væru að blöðum og að kannski rétt ,en þessu á að gefa tíma og ef vel reynist, þá er þetta gott framtak sem mun skila sér i óhludrægni frettamensku ef satt er eftir haft,þetta er bara gott að hafa svona úttekt einu sinni i viku eða svo,bið bara spenntur/Halli gamli


mbl.is Nýtt helgarblað í frídreifingu í október
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 1045796

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband