Samfylking við suðumark/það er nú reindar hjá fleirum!!!!

Samfylking við suðumark
Innlent | Morgunblaðið | 1.10.2010 | 5:30

Samþykkt var á Alþingi að senda mál Geirs H. Haarde til LandsdómsÁgreiningur er kominn upp í þingflokki Samfylkingarinnar í kjölfar atkvæðagreiðslunnar um ákærurnar, sl. þriðjudag. Hópur þingmanna flokksins telur að alla fjóra fyrrverandi ráðherrana hefði átt að ákæra, en annar hópur telur að engan hefði átt að ákæra.

Þeir þingmenn sem greiddu því atkvæði að Geir H. Haarde yrði ákærður, en ekki Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, sæta mestri gagnrýni.

Þá eru skiptar skoðanir innan þingflokksins um endurkomu Björgvins G. Sigurðssonar á þing og er talið líklegt að átök verði innan flokksins um einhverja hríð.

Í gær sagði í frétt Morgunblaðsins að viðmótið yrði ískalt á þinginu. Reiði þingmanna Sjálfstæðisflokksins í garð ákveðinna þingmanna Samfylkingar og Framsóknarflokks væri slík að þeir segjast ætla að sniðganga þá á þingi með öllu; ekki geti orðið um samstarf við þá að ræða og þeir njóti ekki trausts.

Pólitísk aðför meirihluta þingsins að einum manni, Geir H. Haarde, muni hafa afleiðingar í för með sér og þau sem tóku þá ákvörðun séu ekki búin að bíta úr nálinni með það, samkvæmt frétt Morgunblaðsins í gær.

Fjöldi úrsagna

Yfir 220 manns sögðu sig úr Samfylkingunni í fyrrihluta septembermánaðar. Þetta hefur Morgunblaðið eftir áreiðanlegum heimildum.

 

Ekki hefur fengist staðfest hversu margar úrsagnir hafa verið úr flokknum síðustu daga, því Sigrún Jónsdóttir, framkvæmdastýra flokksins, neitaði hér í Morgunblaðinu í gær að upplýsa um það hversu margar uppsagnirnar hefðu verið eftir atkvæðagreiðsluna á þriðjudag, en hún staðfesti að nokkuð hefði verið um úrsagnir.

Jón Þór Sturluson hagfræðingur, fyrrverandi aðstoðarmaður Björgvins G. Sigurðssonar, fyrrverandi banka- og viðskiptaráðherra, sagði sig til dæmis úr Samfylkingunni í fyrradag.////.það er von að hrikti i stoðum þarna,þetta var hvílíkt feil gert þarna að það hálfa væri nóg ,en" þeim sviður sem undir miga "segir maltækið og það er vona að þarna sé óánægja mikil og það er ekki bara þarna heldur viðar og ekkert búið að bita úr nálinni með þetta,og það hriktir i stjórnarsamstarfinu einnig/Halli gamli


mbl.is Samfylking við suðumark
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 1045704

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband