Lýsa yfir vanþóknun á háum afskriftum í bönkunum/sama hvað gott kemur,Framsókn ekki alsvarnað!!!

Lýsa yfir vanþóknun á háum afskriftum í bönkunum
Innlent | mbl.is | 7.10.2010 | 16:38

Merki Landssambands framsóknarkvenna. Landssamband framsóknarkvenna lýsir yfir vanþóknun á þeim gríðarlega háu afskriftum sem fram hafa farið í bönkunum á lánum ákveðinna fyrirtækja á sama tíma og harkalega er gengið nærri almenningi sem glímir við gríðarlegan skuldavanda. Þetta kemur fram í ályktun sambandsins

Þar kemur einnig fram að Landssamband framsóknarkvenna telji það einnig mjög ámælisvert að sum þessara fyrirtækja hafi greitt sér himinháan arð á sama tíma og þau hafa safnað gríðarháum skuldum.

Þá er ríkisstjórn Íslands og þingheimur hvattur til þess að hlusta á þau alvarlegu skilaboð sem almenningur sé að senda um raunverulegar breytingar í stjórnmálum á Íslandi þannig að sátt geti náðst í samfélaginu.

Þá er lagt til að skipuð verði þjóðstjórn til að ráðast í neyðaraðgerðir, fara í þær lýðræðislegu breytingar sem þurfi að ljúka og síðan verði boðað til kosninga.////Framsókn hefur verið svolítið tvístígandi i minni bók,en það er sama hvaðan gott kemur,þetta er sannleikur og ekkert annað,það er mismunað svo að það hálfa væri nóg,það hefði löngu þurft að setja neyðarlög á þessa banka og vera bunir að taka þetta allt i gegn fyrir löngu ,ekkert annað í stöðunni/Halli gamli


mbl.is Lýsa yfir vanþóknun á háum afskriftum í bönkunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 1045796

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband