Ögmundur: Ekkert óðagot/ því á að beita þessu þá i heilsugeiranum??????

Ögmundur: Ekkert óðagot
Innlent | mbl.is | 17.10.2010 | 20:29

Ögmundur Jónasson. Ögmundur Jónasson segir að óðagotsvinnubrögð verði ekki viðhöfð á meðan hann gegni embætti dómsmálaráðherra. Fréttir af skipulagsbreytingum innan lögreglunnar séu úr lausu lofti gripnar. „Staðreyndin er sú að þetta eru mál sem engan veginn eru útrædd og niðurstöður liggja ekki fyrir.“
skrifar Ögmundur á heimasíðu sína.

Hann segir að í starfi sínu sem formaður BSRB hafi hann oft þurft að fást við afleiðingar slakra vinnubragða innan stjórnsýslunnar. Það hafi ekki verið síst þegar ráðist hafi verið í vanhugsaðar breytingar sem ekki höfðu verið hugsaðar til enda.

„Þess vegna brá mér við fréttir RÚV í dag þar sem sagt var frá skipulagsbreytingum innan lögreglunnar, sem fréttastofan hafði „heimildir um." Fyrir mig voru þetta hins vegar fréttir - úr lausu lofti gripnar - og heyrir þessi málaflokkur þó undir ráðuneyti þar sem ég er í forsvari. Landssamband lögreglumanna mótmælti  sögusögnum fréttastofunnar sem ég efast ekki um að eru komnar frá embættismönnum sem ranglega telja sig hafa umboð til að ráðskast með stjórnsýsluna,“ skrifar Ögmundur. Þess ber að geta að mbl.is vísaði í frétt RÚV fyrr í dag.

Þá segir hann að umræða um breytingar á réttarkerfinu sé dæmi um vinnubrögð sem hann kunni að meta. Á málþingi Lögmannafélagsins hafi komið fram sameiginlegur skilningur lögmanna og dómara um nauðsynlegar  breytingar á dómskerfinu á þá lund að mynduð yrðu þrjú dómstig í stað tveggja.

„Ekki hafa allir verið á eitt sáttir um þetta í tímans rás en ljóst er að umræðan er á enda runnin og að nú vilji flestir koma þessari hugmynd í framkvæmd. Jafnvel efasemdarmenn um skipulagsbreytingarnar fallast á þetta. Málið þykir útrætt,“ skrifar Ögmundur.

Hann bætir við að dómskerfinu á Íslandi eigi ekki að breyta í fljótræði og hið sama eigi við um löggæsluna. Breytingar þurfi að vera vel ígrundaðar og helst þurfi að ríkja um þær sátt.////það er gaman að heyra að Ögmundur vill ekkert óðagot,og maður spyr þá bata af hverju er því þá beitt i heilsugeiranum,á ekki það sama við þar,auðvitað einnig með allt sem á að gera og breyta og bylta það er allstaðar!!! en þetta fylgir einnig um stjornaskrA´og Forseta lýðveldisins,það þarf ekkert óðagot þar heldu,en það liggur á að bjarga okkar heimilum og fyrirtækjum og meiri vinnu og koma stað öllu sem hægt er þar/Halli gamli


mbl.is Ögmundur: Ekkert óðagot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1045688

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband