Íslendingar verulega svartsýnir/ maður bara spyr, er nokkur ástæða til bjartsýni,ekki sér maður það nálgast!!!

Íslendingar verulega svartsýnir
Innlent | mbl.is | 26.10.2010 | 12:23

Neytendur eru svartsýnir á ástandið í efnahagslífinu Svartsýni eykst verulega meðal Íslendinga ef marka má Væntingavísitölu Gallup fyrir októbermánuð. Vísitalan lækkar um 35,7 stig milli mánaða og er einungis 32 stig nú. Þegar vísitalan mælist undir 100 stigum eru fleiri svartsýnir en bjartsýnir á horfur í íslensku efnahagslífi.

Íslenskir neytendur hafa ekki verið svartsýnni í rúmt ár, samkvæmt Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka. Aðeins einu sinni áður hefur vísitalan lækkað svona mikið milli mánaða en það var í bankahruninu í nóvember árið 2008.

„ Engan þarf að undra að vísitalan lækki á milli mánaða nú  enda hefur fátt annað verið í fréttum undanfarnar vikur en skuldavandi heimilanna og yfirvofandi uppsagnir opinberra starfsmanna en mikill niðurskurður er boðaður í fjárlögum sem lögð voru fram í byrjun þessa mánaðar. 

Þó kemur þessi mikla lækkun nú töluvert á óvart enda hefur vísitalan farið hækkandi undanfarið og stóð í síðasta mánuði í næsthæsta gildi sem hún hefur náð frá því fyrir hrun. 

Frá bankahruninu hefur vísitalan mælst að meðaltali rúm 40 stig og er því augljóslega mun svartara yfir landanum nú en undanfarin misseri og um verulegt bakslag að ræða á þróun hennar. Eins og kunnugt er mælir vístalan væntingar neytenda til efnahags- og atvinnulífsins og þegar vísitalan er undir 100 stigum eru fleiri neytendur svartsýnir en bjartsýnir," segir í Morgunkorni.

Lítil trú á bata í efnahagslífinu

Allar undirvísitölur lækka að þessu sinni og munar þar mestu minnkandi tiltrú fólks á að ástandið í efnahags- og atvinnumálum þjóðarinnar muni batna á næstunni. Þannig lækka væntingar neytenda til næstu 6 mánaða um  52,7 stig og mælast nú 48,6 stig og er um verulegt bakslag að ræða enda hefur vísitalan mælst yfir 100 stigum síðustu þrjá mánuði.

Mat á núverandi ástandi lækkar um 10,2 stig og mælist nú 7 stig. Mat á atvinnuástandinu lækkar um 40,1 stig og mælist nú 32,5 stig og mat á efnahagslífinu um 34,9 stig og mælist nú 31,4 stig.////Því miður er ekki hægt að vera mikið bjartsýnn þessa daga og jafnvel þó viðri bara vel og allt það,þá er þessi ríkisstjórn að gera lítið sem ekkert sem gleður að kætir ,fólkið er að bíða eftir að hún taki á málum en það gerist á hraða snigilsins,eða hægar,en maður er kannski óþolinmóður ,en svona fjarlög og niðurskurður setur okkur flest i vont skap,það er eitt aðal i þessu það er forgangröðin hún er forkastanleg,að á mínu álíti og flestra,þetta með að skrúfa nánast fyrir heilbyrgiskerfið er ekki vænlegt ,það kemur allt i hauisinn á okkur aftur,það er svo margt sem hægt er að spara ,sem ekki má helst snerta /Halli gamli


mbl.is Íslendingar verulega svartsýnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband