Lausn Icesave fyrir lok árs/Össur segir Össur segir:bráðum koma koma blessuð Jól !!!

Lausn Icesave fyrir lok árs
Innlent | mbl.is | 2.11.2010 | 17:58

Mótmæli InDefenceSamningaviðræðum íslenskra stjórnvalda við stjórnvöld í Bretlandi og Hollandi um lausn Icesave-deilunnar lýkur væntanlega fyrir lok árs, segir Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra í samtali við Reuters.

Spurður að því í viðtalinu við Reuters um hvort viðræðurnar myndu ná fram á næsta ár taldi Össur það ólíklegt.

„Mín reynsla af Icesave er sú að ekki er hægt að útloka neitt. En ég held í hreinskilni sagt að það sé ólíklegt," sagði Össur sem er staddur í Ósló.

Össur segir að hann telji að viðræðunum ljúki innan mánaðar. Hann er hins vegar ekki viss um að allir þeir sem koma að viðræðunum verði ánægðir með niðurstöðuna en væntanlega sáttir.

Hann sagði við blaðamann Reuters að hann hefði svarað fyrir mánuði síðan að hann teldi að viðræðunum myndi ljúka innan tveggja vikna. Nú telji hann líklegt að niðurstaðan liggi fyrir innan mánaðar, jafnvel fyrr. Segir Össur að viðræðurnar séu á viðkvæmu stigi nú.

Eins og áður hefur komið fram þá telur Össur engar líkur á að Icesave-viðræðurnar muni trufla aðildarviðræður Íslands að Evrópusambandinu. Hann segir að treysta verði leiðtogum ESB þar að lútandi.

Össur sagði í viðtalinu við Reuters að sambandið milli Íslands og Kína hafi aukist í kjölfar efnahagshrunsins hér og Kínverjar hafi aðstoðað Íslendinga á meðan aðrar þjóðir, sem stæðu þeim nær, hafi ekki gert það. Meðal annars með gjaldeyrisskiptasamningum. Eins hafi Kínverjar sýnt áhuga á málmframleiðslu sem þurfi á mikilli raforku að halda. Sem og á samstarfi á Norðurslóðum.////þetta er svo að Össur segir margt og það ekki allt sem blífur rétt,en svona er þetta hann talar út og suður um hlutina erlendis og er nátturrlega utanreikisráðherra og talar digurbarkalega um þetta og hitt,vonum að eitthvað sé samt að marka ,einnig þetta með Kína sem hann segir að hafi hjálpað okkur .þegar engin annar vildi það,það er spæling i ESB er það ekki eða norðurlönd sem eru að funda hérna með okkur núna og lofa ríkisstjórn i hástert,en Össur er bara mjög kjaftagleiður eins og alltaf/Halli gamli


mbl.is Lausn Icesave fyrir lok árs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Náum honum úr úr alþingi núna!

Sigurður Haraldsson, 2.11.2010 kl. 23:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband