Engin skref stigin fyrr en í mars/ talað í gátum !!!!!

Engin skref stigin fyrr en í mars
Viðskipti | mbl.is | 3.11.2010 | 11:18

Már Guðmundsson Ekki má gera ráð fyrir því að neinar breytingar verði gerðar á gjaldeyrishöftum fyrr en á næsta ári. Gjaldeyrishöftin verða ekki afnumin fyrr en fjórðu endurskoðun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er lokið. Að sögn Más Guðmundssonar, seðlabankastjóra, er ekkert öruggt í hendi um að einhverjar breytingar verði gerðar á gjaldeyrishöftunum í mars en hann segir að öruggt sé að engar breitingar verða geraðr á þeim tíma.          Áður en ný áætlun verður kynnt varðandi afnám gjaldeyrishafta gætu aðgerðir til að undirbúa afgerandi afnám hafta á fjármagnsútflæði litið dagsins ljós að því gefnu að ekki komi fram lagalegar eða aðrar hindranir. Þetta er meðal þess sem fram kom í yfirlýsingu seðlabankastjóra sem hann kynnti á fundi með blaðamönnum í dag.

„Hér gæti verið um að ræða aðgerðir til að leyfa, gegnum skipulögð uppboð, skipti á löglega fengnum aflandskrónum fyrir löglegar erlendar eignir innlendra aðila. Einnig kæmi til greina að leyfa fjárfestingu löglega fenginna aflandskróna í sérstökum langtíma verkefnum eða öðrum sértækum verkefnum á Íslandi," segir í yfirlýsingu Más. 

Að gefnu því að það gæti dregist til áramóta að bæta úr hugsanlegri vöntun á eigin fé í bankakerfinu, þá er ekki raunhæft að ætla að önnur skref en þau sem lýst var hér að framan verði stigin til að aflétta höftum á útflæði fjármagns fyrir árslok.

Auk þess verða engin slík skref stigin áður en endurskoðuð áætlun hefur verið kunngerð. Ennfremur verða engar grundvallarbreytingar á núverandi reglum gerðar fyrr en í mars 2011 þótt endurskoðuð áætlun verði tilbúin fyrir þann tíma.

Hafa ber í huga að heimildir í lögum um gjaldeyrishöft renna út í lok ágúst 2011. Hins vegar gæti tillaga um framlengingu lagaheimildarinnar orðið hluti af endurskoðaðri áætlun, sem verður lögð fram fyrir marsmánuð 2011.//þetta kalla menna að tala i gátum að mínu áliti,en manni segist hugur að  þessi vinstri stjórn vilji samt hafa þetta svona,höft a höft ofan ,ef þeir komast upp með það,"eftir höfðinu dansa limirnir " segir maltækið ,og þó Seðlabanki eigi að ver sjalstæður þá er þetta samt allt vinstri ,ekkert annað ,en það er ekki allt vont við þetta og ber að fara varlega i þessu sem öðru ekki spurning/Halli gamli


mbl.is Engin skref stigin fyrr en í mars
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Viðskiptaráðuneytið þarf að skrifa undir allt sem Seðlabankinn gerir.

Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 3.11.2010 kl. 12:21

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

satt Stefán ,þess þá heldur er þetta svona/Kveðja

Haraldur Haraldsson, 3.11.2010 kl. 13:42

3 identicon

Enmitt.  Seðlabankinn er ekki eins sjálfstæður eins og stjórnvöld halda fram.

Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 3.11.2010 kl. 13:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1045680

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband