Innistæður hafa minnkað um 90,7 milljarða /svo er talað um að fólkið hafi mikið fé handa á milli og eyði,er það nokkur furða???

Innistæður hafa minnkað um 90,7 milljarða
Innlent | mbl.is | 3.11.2010 | 11:58

Mynd 515150 Innistæður í bankakerfinu hafa lækkað um 90,7 milljarða króna frá áramótum og innlán heimila hafa lækkað um 69,6 milljarða króna sem svarar til rúmlega 9% lækkunar. Innlán fyrirtækja hafa minnkað samtals um 4,4 milljarða króna, eða sem samsvarar 1,3%.

Rétt eins og efnahagsreikningur Seðlabankans stækkaði, jókst peningamagn í umferð mikið í aðdraganda hruns bankanna og enn frekar í kjölfar þess. Fór hlutfall víðs peningamagns af landsframleiðslu úr 55% í lok ársins 2003 í 116% þegar það náði hámarki í nóvember 2008, segir í nýútgefnum Peningamála Seðlabanka Íslands.

Undanfarna mánuði hefur peningamagn minnkað nokkuð. Það sem af er þessu ári hafa milli 13-18% peningamagns verið á gjaldeyrisreikningum í bankakerfinu og má því rekja hluta samdráttar peningamagnsins til styrkingar krónunnar á árinu, en einnig er samdráttur í flestum öðrum liðum peningamagns.

Útlán hafa ekki aukist sem neinu nemur

Staða útlána bankakerfisins bendir ekki til þess að útlán hafi aukist í neinum mæli. Tölur yfir útlán bankakerfisins eru hins vegar litaðar af endurskipulagningu þess auk þess sem stór hluti útlána bankanna er gengistryggður með einhverjum hætti.

„Það er því sérstaklega erfitt nú um stundir að sjá hver eiginleg þróun nýrra útlána hefur verið, en miðað við þær tölur sem liggja fyrir má ætla að útlánavöxturinn sé afar lítill. Sú þróun kemur ekki á óvart þrátt fyrir að vextir hafi lækkað þar sem mikil óvissa um efnahagsreikninga heimila og fyrirtækja er til þess fallin að draga úr útlánastarfsemi, auk þess sem óvissa um efnahagshorfur rær í sömu átt. Þetta á ekki einungis við hér á landi," segir í Peningamálum.////svo er mikið talað um að fólkið sé með mikla pening og eyði þeim í hitt og þetta,er það nokkur furða,þegar raunvextir eru neikvæðir !!!en bankarnir þeir virðast hafa nógu úr að spila lifa á  háum vöxtum lána og vertryggingu og svo auðvitað þessi ofur hækkun a´lánum sem var við kreppuna og við höfum ekki fengi bætt,alls ekki ,en bankarnir lifa á því góðu lifi og hirða aðra hverja íbúð af landanum,og leiga eða selja en skuldir þeirra sem missa halda áfram ,er þetta gott, nei segum við öll/Halli gamli


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 1045678

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 44
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband