Rýnt í samningaviðræður við ESB/hvað er þetta annað en aðlögun??bara spyr og vil svar!!!

Rýnt í samningaviðræður við ESB
Innlent | mbl.is | 15.11.2010 | 11:35

Höfuðstöðvar Evrópusambandsins.Rýnifundir íslenskra sérfræðinga og sérfræðinga framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins til undirbúnings samningaviðræðum um aðild Íslands að ESB hófust í Brussel í dag.

Á rýnifundunum er farið yfir  löggjöf beggja aðila í þeim 33 efnisköflum sem lagasafn Evrópusambandsins skiptist í til að greina hvar íslensk löggjöf er frábrugðin og hvað semja þarf um, segir í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Á fyrsta rýnifundinum er fjallað um 5. kafla - Opinber innkaup, sem er hluti af EES-samningnum. Ísland hefur þegar tekið upp þessa löggjöf en í kaflanum er m.a að finna almennar reglur um gagnsæi, jafnræði og frjálsa samkeppni, og samræmingu reglna um gerð samninga um framkvæmdir, þjónustu og birgðakaup á vegum opinberra aðila. Markmið fundarins er að staðreyna innleiðingu löggjafarinnar og ræða framkvæmd opinberra innkaupa hér á landi.

Af hálfu Íslands sitja nokkrir sérfræðingar á þessu sviði fundinn í Brussel. Einnig gefst fulltrúum úr samningahópnum (EES I), þ. á m. fulltrúum hagsmunahópa, að taka þátt í fundinum í gegnum fjarfundabúnað. Þetta er í fyrsta skipti sem fjarfundabúnaður er notaður með þessum hætti í rýnivinnu á vegum Evrópusambandsins en með því jafnframt unnt að ná fram nokkrum sparnaði.

Tveir rýnifundir munu fara fram um flesta samningskafla. Á þeim fyrri kynnir framkvæmdastjórnin löggjöf ESB og á þeim síðari kynnir Ísland sína löggjöf. Í einstaka köflum sem falla undir EES-samninginn, þar sem regluverkið hefur að öllu leyti verið tekið upp af Íslands hálfu, verður aðeins um einn fund að ræða.  

Að loknum rýnifundum mun framkvæmdastjórn ESB skrifa skýrslu um niðurstöðu rýnifunda og eins munu íslenskir sérfræðingar skila skýrslu til samninganefndar Íslands. Að því loknu mun Ísland annars vegar og ESB hins vegar leggja fram samningsafstöðu sína í viðkomandi köflum og hefja eiginlegar samningaviðræður, samkvæmt tilkynningu.//eitthver segja manni annað en þetta sé aðlögun,bara spyr, og maður sér ekki annað en þetta sé það!!! það er verið að láta okkur þarna inn og ekkert annað svo með þessa þjóðaratkvæðagreiðslu hún er ekkert bindandi alþingi hefur siðasta orðið,Jóhann hefur aldrei staðfest að hún sé bindandi og þar við situr,eigum við að láta virkilega plat okkur svona ,samfylking gerir allt til að veiða okkur i þessi gildru ,svei því attan!!!/Halli gamli


mbl.is Rýnt í samningaviðræður við ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 1045796

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband