Yfir 10% heimila í vanskilum /þetta mun vara mjög vægt reiknað,þetta fer svo hratt niðurávið!!!!

Yfir 10% heimila í vanskilum
Innlent | mbl.is | 19.11.2010 | 9:01

10,1% heimila voru í vanskilum með húsnæðislán eða leigu Lífskjararannsókn Hagstofu Íslands sýnir að 10,1% heimila voru í vanskilum með húsnæðislán eða leigu einhvern tíma síðastliðnu 12 mánuði samanborið við rúm 7% árið 2009 og 5,5% árið 2008. 13,3% voru í vanskilum með önnur lán. Nálega helmingur heimila átti erfitt með að ná endum saman á árin

36% geta ekki mætt óvæntum útgjöldum

16,5% heimila töldu húsnæðiskostnað þunga byrði og 19,2% töldu greiðslubyrði annarra lána en húsnæðislána eða leigu þunga. Tæp 36% heimila gátu ekki mætt óvæntum útgjöldum að upphæð 140 þúsund krónur eftir hefðbundnum leiðum. Þegar heildarmyndin er skoðuð var fjárhagsstaða heimilanna verri árið 2010 en næstu ár á undan.

Þegar horft er til heimilisgerðar kemur í ljós að einstæðir foreldrar áttu helst í fjárhagsvanda árið 2010. Barnlaus heimili þar sem fleiri en einn er fullorðinn stóðu best fjárhagslega. Heimili þar sem meðalaldur fullorðinna einstaklinga var 30-39 ár virtust eiga í mestum vanda þegar litið var til aldurs. Almennt má segja að því hærri sem meðalaldur fullorðinna einstaklinga er í heimili, því betur stendur það fjárhagslega.

Hagstofa Íslands hefur í dag gefið út Hagtíðindi þar sem nánar er fjallað um niðurstöður lífskjararannsóknarinnar. Rannsóknin er hluti af samræmdri lífskjararannsókn Evrópusambandsins. Heildarúrtak í rannsókninni var 4218 heimili. Að frádregnum látnum einstaklingum og þeim sem búsettir voru erlendis var úrtakið 3968 heimili. Svör fengust frá 3021 heimili en það er 76% svarhlutfall. Lífskjararannsóknin fór fram í mars, apríl og maí á þessu ári.////þar sem þessu úttekt var gerð i mars ,apríl og Maí,hefur þetta mikið versnað siðar að mínu mati svo það er komið svo að þetta eru ekki réttar tölur nú i Nóvember als ekki en samt eru þetta skelfilegar tölur og við sjáum að þær álögur sem eru að koma daglega og svo skattar og tollar og siðar Útsvar á allar tekjur munu hækka um áramót,þá sjá allir nema Ríkisstjórnin og Borgarstjórnin og sveitafelg og þetta gengur ekki upp,það getur ekki venjulegt fólk tekið þetta allt a´sig,og bankarnir fitna ein og púkinn á fjósbitanaum/Hvernig má svolalagað ske,svari hver fyrir sig/Halli gamli


mbl.is Yfir 10% heimila í vanskilum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 1045632

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband