Formaður Framsóknar segir ráðist að grunnstoðum//þarna er maður sem þorir að segja sannleikan!!!!

Formaður Framsóknar segir ráðist að grunnstoðum
Innlent | mbl.is | 20.11.2010 | 16:56

Sigmundur Davíð í ræðustól á haustfundi miðstjórnar... Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins ,sagði í ræðu sinni á haustfundi miðstjórnar Framsóknarflokksins á Húsavík í dag að utanaðkomandi ógn steðjaði að Þingeyingum.

Sú ógn væri fyrst og fremst pólitísk, stjórnvöld hefðu hvað eftir annað brugðið fæti fyrir uppbyggingarstarf Þingeyinga.

„Steininn hefur oft tekið úr í þeim efnum en nú hefur verið gengið lengra en nokkur hefði ímyndað sér í því að vega að byggð á norðausturhorni landsins. Í gegnum fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar er nú ráðist að grunnstoðum samfélagsins hér. Stjórnsýslunni, menntun og alveg sérstaklega að heilbrigðisþjónustu. Þótt menn hefðu lagt sig eftir því hefði varla verið hægt að finna leið sem grefur jafn mikið undan þessu samfélag,“ sagði Sigmundur og sagði að með niðurskurðinum væri vegið að öryggi íbúanna, efnahag sveitarfélagsins, aðstöðu til uppbyggingar, atvinnustigi, búsetuþróun og nánast öllum sviðum mannlífs.
Það sama ætti við á mörgum stöðum vítt og breytt um landið.

„Raunar er ekki bara um niðurskurð að ræða,“ sagði Sigmundur. 
„Með tillögum er verið að innleiða algjöra kerfisbreytingu í gegnum fjárlagafrumvarpið. Þau vinnubrögð eru algjörlega óásættanleg.“

Hann sagði að framsóknarmenn myndu beita sér að öllu afli gegn því að heilbrigðisþjónustunni yrði kollvarpað.

Í ræðu sinni ræddi Sigmundur um framtíðarþróun heimsins. Sama hver hún yrði, þyrftu jarðarbúar ávallt mat, hreint vatn og orku. Það væru helstu auðlindir Íslendinga. „Ekki aðeins framleiðum við matvæli heldur besta form næringar, prótín. Nýleg rannsókn sýnir að á Íslandi er til jafnmikið af hreinu nýtanlegu vatni og í stærstu og fjölmennustu löndum Evrópu. Svo lengi sem lögmál eðlisfræðinnar halda verður orka ekki til úr engu en af henni eigum við mikið, ekki í formi kola sem eyðast og menga andrúmsloftið, heldur hreinni endurnýjanlegri orku. “

Sigmundur sagði framtíð þjóðarinnar undir því komna að okkur takist að verja þessar auðlindir og leggja rækt við þær.

„Við erum ekki nema rúmlega 300.000 manna þjóð og höfum byggt upp sterka innviði á 100 árum og getum skapað mikil verðmæti innanlands.
Það sem af er þessu ári höfum við flutt út 27% meira en við flytjum inn.
Það er nánast einstakt á vesturlöndum. Fjölskyldufyrirtækið Ísland er rekið með miklum hagnaði. Það ætti að vera nóg til skiptanna,“ sagði Sigmundur og spurði hvernig það mætti vera að í slíku þjóðfélagi standi fólk í biðröð eftir matargjöfum.

„Hvernig stendur á því að stjórnvöld í slíku landi telja sig ekki geta veitt öllum landsmönnum gott aðgengi að mikilvægustu heilbrigðisþjónustu?
Hvers vegna þarf svona fámenn þjóð, sem á svona mikið, að klípa af lágum tekjum þeirra sem komnir eru á eftirlaun eða geta ekki unnið vegna örorku.  Höfum við ekki efni á að mennta þjóðina svo að hún geti skapað meiri verðmæti í framtíðinni? Hvers vegna flytja 10 manns á dag burt úr landinu í leit að vinnu og betri lífskjörum'“ spurði Sigmundur.

Eitthvað er að í því hvernig við nýtum sameiginleg verðmæti okkar og við erum því miður ekki að færast í rétta átt í þeim efnum.“


Hann sagði vandann liggja í skuldunum, það að draga úr þeim væri forsenda þess að íslenska þjóðin „geti haldið áfram uppbyggingarstarfinu og tryggt velferð allra.“


„En við vinnum ekki á skuldunum með því að vega að grunnstoðum samfélagsins og gera það verr í stakk búið til að skapa verðmæti. Við vinnum aðeins á skuldavandanum með því að skapa verðmæti. Þess vegna er hræðilegt að síðastliðin 2 ár, sem hefðu átt að geta verið ár tækifæranna á svo margan hátt, hafi farið til spillis. “

„Efniviðurinn er allur til staðar og dæmið getur gengið hratt upp svo framarlega sem við beitum hinni skynsömu miðjuleið.

En við verðum að gera okkur grein fyrir því að það eru ekki allir sammála okkur. Margir, og reyndar meirihlutinn verður aldrei sammála Framsóknarflokknum, eins undarlegt og það kann nú að virðast.
En við eigum ekki að láta það fólk sem ekki er sammála okkur ráða því hvað við erum,“ sagði Sigmundur Davíð í lok ræðu sinnar.////Maður verur bara að segja það að þarna er maður sem þorir að segja sannleikan,og vel það,.lesið þetta og setjið svo út á það en þetta er sannleikur og ekkert annað,maður hefði viljað að mínir menn væru svo skeleggir og það vantar oft uppá að manni finnst/en þarn er rakið lið fyrir lið það sem  þessi ríkisstjórn er að gera að eyðileggja grunstoðir þjoðfelgasins við sjáum þetta orðið öll en samt er þetta látið viðgangast ,við eigum öll að taka á og mótmæla það er víst það eina  sem allavega Jóhanna skilur/Halli gamli


mbl.is Ráðist að grunnstoðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórarinn Baldursson

Að koma þessari stjórn frá er það mesta og besta þarfa verk sem við almenningur gætum gert. Hún er fyrir löngu búin með kvótan sinn,og eiðir og spennir í allskonar rugl á meðan fólk og fyrirtæki eru á vonarvöl. Það er helvíti hart að þurfa að viðurkenna að svona friðsemdar maður eins og ég,er alveg tilbúinn að sína fulla hörku,ef til þess kemur að fólki fari gegn þessum vesalingum.

Þórarinn Baldursson, 20.11.2010 kl. 17:39

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Þórarinn mikið erum við sammála þarna /Þakka innlitið/Kveðja

Haraldur Haraldsson, 20.11.2010 kl. 22:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 1045641

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband