Prófastsdæmum fækkað/en ekki tekið á málum aðskilanaðar Ríkis og Kirkju að fullu???

Prófastsdæmum fækkað
Innlent | mbl.is | 21.11.2010 | 10:04

Kirkjuþing 2010 var haldið í Grensáskirkju í Reykjavík. Kirkjuþing hefur samþykkt að efla samstarf með samstarfssvæðum sókna og verður þeim komið á fyrir árslok 2011. Þá var ákveðið að fækka prófastsdæmum úr tólf í níu. Þingið fjallaði um fjármál kirkjunnar og lýsti áhyggjum sínum vegna niðurskurðar sem vegi að grunnþjónustu kirkjunnar um allt land.

Borgarfjarðarprófastsdæmi og Snæfellsness- og Dalaprófastsdæmi sameinast í Vesturlandsprófastsdæmi og Eyjafjarðaprófastsdæmi og Þingeyjarprófastsdæmi sameinast í Eyjafjarða- og Þingeyjarprófastsdæmi frá 30. nóvember 2010. Múlaprófastsdæmi og Austfjarðarprófastsdæmi sameinast í Austurlandsprófastsdæmi frá 1. nóvember 2011.

Kirkjuþinginu lauk í Grensáskirkju á föstudaginn. Alls voru 38 mál lögð fram. Þingið afgreiddi þau með 11 starfsreglum og 19 þingsályktunum.

Þriggja manna rannsóknarnefnd var kosin sem á að rannsaka alla starfshætti og viðbrögð þjóðkirkjunnar vegna ásakana á hendur Ólafi Skúlasyni biskupi um kynferðisbrot. 

Þingið ályktaði um kirkju, þjóð og framtíð og skipaði starfshóp sem huga skal að þróun samfylgdar og tengsla ríkis og kirkju. Það skipaði einnig milliþinganefnd sem á að fara yfir frumvarp til nýrra þjóðkirkjulaga. Loks var kjörið nýtt kirkjuráð sem situr næstu fjögur árin.////þetta mjög svo gott fyrir okkur kristna menn að halda kirkjuþing!! en hvað er að þegar þessir menn blessaðir, vita að það er meirihluti fyrir aðskilnaði Ríks og kirkju að fullu að það mál ,hefur ekki meira vægi þarna,við  sem  erum i Fríkirkjum tölum að reynslu af hverju er ekki farið að gera hlutina rétta,og ger þetta bar sí svona ,annað er ekki í spilunum að mínu álit,En núna að hlusta á messu i Fríkirkjunni í útvarpi Presti Sera  Hjörtur Magni segir þetta UMPBÚÐRALAUST og hefur alltaf gert,þetta er minn fyrri söfnuður ,en er einn af stofnendum Óháða safnaðarins og þar gengur allt vel og safnaðameðlimir eru yfir 3000 og er það vel,margir söfnuðir úti á landi eru með um 100 -1500 mans ekki meira ,sjá´akki allir að þarna má  hagræða,sem mundi eflaust gert ef þessu yrði breitt/en i maður saknar þessa að þetta skuli ekki ver gert innan kirkjunnar heldur láta aðra sjá um þetta /Halli gamli


mbl.is Prófastsdæmum fækkað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1045680

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband