Ökumenn annarshugar/stór hluti þessa eru áhyggjur af skuldum og vandamálum ,stjórnleysisi Ríkisstjórnar vorar!!!!

Ökumenn annarshugar
Innlent | mbl.is | 24.11.2010 | 11:10

Mikil umferð er iðulega um Miklubraut Á þriðja tug umferðaróhappa urðu á höfuðborgarsvæðinu í gær að sögn framkvæmdastjóra Aksturs og Öryggis, en fyrirtækið annast vettvangsrannsóknir umferðaróhappa. Hann segir að langflest óhappanna megi rekja til þess að ökumenn hafi ekki verið með hugann við aksturinn.

Ómar Þorgils Pálmason, framkvæmdastjóri Aksturs og Öryggis, segir í samtali við mbl.is að óhöppin hafi átt sér stað á milli 7:45 og 18:30. Þá hafi þremur þriggja bíla árekstrum verið sinnt, m.a. á Miklubraut og á Hafnarfjarðarvegi.

Ómar segir að óhöppin hafi ekki verið hálkutengd og töluvert hafi verið um aftanákeyrslur. „Akstursskilyrði voru alveg með ágætum í gær þannig að það er ekki því um að kenna,“ segir hann.

„Menn eru ekki alveg með hugann við aksturinn. Það sást svolítið í gær.“ Þetta hafi verið fleiri óhöpp heldur en á venjulegum degi, en daglega annast fyrirtækið á um annan tug umferðaróhappa á höfuðborgarsvæðinu. Þetta hafi því verið þriðjungsfjölgun á einum degi.

Þá var eignatjón töluvert.

Starfsmenn Aksturs og Öryggis eru fyrrverandi eða núverandi lögreglumenn með reynslu af aðkomu árekstra og slysa, að því er segir á vef fyrirtækisins. 

Ef um umferðarslys er að ræða er lögreglan kölluð á vettvang. Annars sinnir Akstur og Öryggi minni umferðaróhöppum./////það skildi nú ekki vera að að stórhluti þessara ökumanna væri örvinglaðir vegna skulda og bara öngþveitis i þjóðfelaginu öllu ,það setur margan út af  laginu ekki spurning,maður er ekki að afsaka þetta enn samt er þetta eitt að vandamálunum sem hrjá ökumenn um þessar mundir,men eru því miður annars hugar um þetta allt  sem  er að ske´í skuldamálum atvinnuleysi og heilsugeiranum/þetta hefur þvi miður áhrif/Halli gamli


mbl.is Ökumenn annarshugar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045686

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband