Spara þarf 570 milljónir 2012/en 1,3 milljarða 2011 svo þetta er rothögg fyrir Landsbyggðina!!!

Spara þarf 570 milljónir 2012
Innlent | mbl.is | 27.11.2010 | 7:24

Ríkisstjórnin samþykkti tillögurnar í gær. Gert er ráð fyrir að skorið verði niður á sjúkrahúsum á landsbyggðinni um 570 milljónir króna á árinu 2012, en 1,3 milljarða á næsta ári. Hvergi veriður skorið meira en 12% niður á næsta ári.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu. Ríkisstjórnin staðfesti tillögur heilbrigðisráðherra á fundi sínum í gær. Þingflokkar ríkisstjórnarinnar eiga eftir að fjalla um tillögurnar, en að því búnu verða þær lagðar fram í fjárlaganefnd.

Í fréttatilkynningunni segir: „Faghópur á vegum Guðbjarts Hannessonar, heilbrigðisráðherra, hefur á síðustu vikum fundað með stjórnendum og fagfólki á heilbrigðisstofnunum til að leggja mat á möguleika heilbrigðisstofnana til þess að mæta hagræðingarkröfum samkvæmt fjáralagafrumvarpinu. Ráðherra hafði við framlagningu frumvarpsins kynnt ákveðna fyrirvara sem hann gerði við þennan þátt frumvarpsins. Hann fól í kjölfarið faghópi að yfirfara útfærslur stofnananna á aðgerðum til að mæta kröfum um hagræðingu, fá mat þeirra á áhrifum á öryggi íbúa, sjúkraflutninga, almenna heilbrigðisþjónustu og öldrunarþjónustu á hverju svæði fyrir sig. Faghópurinn kynnti ráðherra niðurstöður sínar í gær og eru boðaðar breytingar á fjárlagafrumvarpinu byggðar á þeim. 

Forsendur aðgerða eru óbreyttar að því leyti að staðinn er vörður um grunnþjónustu og heilsugæslan sett í öndvegi sem fyrsti viðkomustaður í heilbrigðiskerfinu. Sérhæfðri sjúkrahúsþjónustu á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri er hlíft en dregið saman á sjúkrasviðum heilbrigðisstofnana sem veita almenna sjúkrahúsþjónustu. Aftur á móti gera tillögurnar ráð fyrir mun minni samdrætti útgjalda en upphaflega var ráðgert í fjárlagafrumvarpi. Hagræðingarkrafa gagnvart heilbrigðisstofnunum samkvæmt fjárlagafrumvarpinu nam rúmum þremur milljörðum króna en verður um 1,9 milljarðar. Gert er ráð fyrir að hagræðingarkrafa ársins 2011 verði um 1,3 milljarðar króna en að kröfu um frekari hagræðingu sem nemur um 570 milljónum króna verði frestað til ársins 2012. 

Í tillögunum er byggt á því að rekstrargrundvöllur einstakra stofnana verði leiðréttur miðað við skilgreint hlutverk þeirra í lögum um heilbrigðisþjónustu, með tilliti til núverandi starfsemi.  Í þessu felst meðal annars að greiðslur fyrir rými á heilbrigðisstofnunum verða reiknaðar út frá meðaldaggjaldi fyrir  hjúkrunarrými aldraðra árið 2010 að viðbættu 15% álagi. Að auki er reiknað viðbótarálag vegna smæðar eininga og fjölda útstöðva eftir því sem það á við. Loks er lagt mat á fjölda stöðugilda sem talinn er nauðsynlegur hverri stofnun vegna skurð-, fæðingar- og stoðdeildaþjónustu miðað við þjónustuna sem þar er veitt. Með þessu er reynt að færa greiðslur fyrir hvert sjúkrarými eins nærri raunkostnaði og kostur er.“////Þetta mun varða rothögg,fyrir landsbyggðina ekki spurning ,þetta mun ásamt öðru koma að eyðingu hennar ekki annað i stöðunni,þetta er ekki i lagi eftir að þeir sem malið varða eru búnir að reikna það út að sparnaður er engin við að leggja þessu spítala meira og mynna niður eins og gert verður,þetta er glæpur og ekkert annað,þessir menn eru ekki að hugsa um manslíf e nei bara spara á vitlausu róli ,þetta er skipun fra´AGS að minka alla heilsugæslu og  jafnvel hvað hana niður í aföngum alveg,þetta er ekki liðandi og við verum  öll að standa þarna með landsbyggðinni/Halli gamli


mbl.is Spara þarf 570 milljónir 2012
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 11
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 1045650

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband