Funda stíft um aðgerðir/Vonandi eitthvað sem kemur að notum,annað en félgsmálapakkar!!!

Funda stíft um aðgerðir
Innlent | mbl.is | 1.12.2010 | 12:19

Ráðherrar hafa átt fundi með fulltrúum ASÍ og SA í dag. Mikil fundarhöld eru í Stjórnarráðinu um aðgerðir vegna skuldavanda heimilanna. Fulltrúar ASÍ og SA voru kallaðir til fundar með ráðherrum fyrir hádegi og kl 12 hófst fundur ráðherra með forsvarsmönnum lífeyrissjóða.

Enn er alls óvíst hvort tekst að ganga frá samkomulagi í dag eða á morgun skv. upplýsingum mbl.is en menn eru þó sagðir vera að nálgast niðurstöðu.

Meðal þess sem verið er að skoða, vegna lausna á fjárhagsvanda heimilanna, er að auka vaxtabætur um sex milljarða króna. Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, sagði við Morgunblaðið, að þetta sé einfaldasta og skilvirkasta aðferðin til að gera þetta í gegnum vaxtabótakerfið; að lækka þannig vaxtakostnað hjá öllum þorra fólks.

Þá hefur ríkisstjórnin lagt fast að lífeyrissjóðunum að sætta sig við að veðsetningarhlutfall á fasteignum yrði lækkað niður í 100-110%. Viðbrögð lífeyrissjóðanna við þessari tillögu hafa verið alfarið neikvæð. Sjóðirnir hafa ekki verið tilbúnir til að fallast á þessa tillögu og telja sig raunar ekki hafa heimild umbjóðenda sinna til slíks enda myndi það rýra mjög eignir sjóðanna.

Einnig hefur ríkisstjórnin kynnt fyrir samráðshópnum og stjórnarandstöðunni áform um að skattleggja bankana aukreitis til að fjármagna hærri vaxtabætur.////Það er svo að eftir alt þetta þras um hvað ger skuli er maður komin á þá skoðun að þetta se´eitt leikrit fra´A-Ö því miður engin vill taka neitt á sig Bankarnir segja nei lifeyrissjóðir nei og bara nefndu það,til hvers eru þessir menn þeir verða bara að setja lög á þetta annað er ekki i stöðunni, annars skeður ekkert,bara snakk og kjaftæði um eitthvað  sem  ekki gerist,þessi ríkisstjórn ,er ekki hæf i  þessum bransa alls  ekki,við skulum bara sjá til hvað skeður???/Halli gamli


mbl.is Funda stíft um aðgerðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 1045796

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband