Fáir ánægðir með stjórnarandstöðuna/þeir þurfa að taka sig á,ekki spurning!!!

ánægðir með stjórnarandstöðuna
Innlent | mbl.is | 2.12.2010 | 8:07

Frá Alþingi. Ríflega 16% landsmanna eru ánægð með störf stjórnarandstöðunnar og hefur ánægjan með störf hennar minnkað umtalsvert frá samskonar könnun í vor þegar 22% voru ánægð.

Fram kemur í Þjóðarpúlsi Gallup, að óánægja með störf stjórnarandstöðunnar eykst enn. Sex af hverjum tíu eru óánægðir með störf hennar nú samanborið við 54% í vor.

Spurt var hvort fólk teldi að stjórnarandstaðan myndi standa sig betur eða verr en núverandi stjórnarflokkar í ýmsum málum væri hún í ríkisstjórn. Nær engar breytingar eru á hlutfalli þeirra sem telja að stjórnarandstaðan myndi standa sig betur en ríkisstjórnin, en á hinn bóginn fækkar þeim verulega sem telja að stjórnarandstaðan myndi standa sig verr en ríkisstjórnin.

Þannig fækkar þeim úr 37% í 29% sem telja að stjórnarandstaðan myndi standa sig verr en ríkisstjórnin í stjórn efnahagsmála, úr 42% i 31% í heilbrigðismálum, úr 45% í 37% í velferðarmálum og úr 39% í 29% í menntamálum.

Þá fjölgar þeim talsvert sem telja stjórnarandstöðuna hvorki betri né verri en ríkisstjórnina þegar kemur að frammistöðu við stjórn hinna ýmsu málaflokka. Fjölgunin er úr 27% í 37% við stjórn efnahagsmála, úr 32% í 42% í heilbrigðismálum, úr 33% í 40% í velferðarmálum og úr 40% í 49% í menntamálum.
/////ekki spurning að þeir verða að taka sig á ,ekki siður en þessi blessuð ríkisstjórn sem er með allt niður um sig, ekki par fín útkoma hja´þeim heldur 36% styðja hana sem er meir en siðast,og skilur það engin,að mínu áliti er það allir sem verða að taka sig a´,en ekki bara það það er ekki viðunandi þetta ,enda ekkert gert til þess að' bætta það,hjá stjorn  eða andstöðu ,við skulum sjá hvað skeður þarna næstu daga /Halli gamli


mbl.is Fáir ánægðir með stjórnarandstöðuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 1045796

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband