Fargjöld Strætó hækka/var ekki inní myndini að hafa frítt í strætó til að minka umferðina????

Fargjöld Strætó hækka
Innlent | mbl.is | 17.12.2010 | 13:48

 Fargjöld Strætó bs. munu hækka um á bilinu 5% til 25% um áramótin, þar á meðal hækkar eitt fargjald úr 280 í 350 krónur. 

Svonefnd tímabilskort Strætó munu hækka á bilinu 14,2% til 14,8%. Minnst hækkun verður á 20 miða kortum barna og ungmenna.

Þetta er fyrsta gjaldskrárhækkun Strætó bs. frá janúar 2007, en frá þeim tíma hefur vísitala neysluverðs hækkað um u.þ.b. 37%. 

Í tilkynningu frá Strætó bs.  segir, að stjórn fyrirtækisins hafi samþykkt að hækka fargjöld  til að mæta því að, fargjaldatekjur Strætó hafi rýrnað um u.þ.b. helming að raunvirði frá stofnun Strætó bs. árið 2001 þar sem fargjöld hafi ekki haldið í við almenna verðlagsþróun frá þeim tíma.

Þá muni eigendur Strætó bs., sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu, jafnframt draga úr framlögum sínum  á næsta ári. Gert sé ráð fyrir að framlögin lækki um 5% milli áranna 2010 og 2011 og þar sem framlög eigendanna séu um 83% af tekjum Strætó þýði minni framlög að hagræða þurfi í rekstri.

Til að mæta því verður dregið úr þjónustu á þeim tíma sem fæstir nota strætó, á kvöldin og að morgni um helgar. Hins vegar verður ekki dregið úr akstri að degi til virka daga og þannig reynt að tryggja að þjónustuaðlögunin hafi áhrif á eins fáa notendur strætó og hægt er.

Ennfremur er gert ráð fyrir að Strætó muni bregðast við aukinni eftirspurn á annatímum með aukinni notkun stærri strætisvagna og fleiri viðbótarvagna þegar flestir eru á ferðinni. Nánari útfærsla á þjónustuaðlögun verður kynnt síðar, en gert er ráð fyrir að hún komi til framkvæmda í febrúar.///já það er bara svo Gnarrinn lætur ekki að sér hæða!!! var ekki lengi verið að tala um að hafa frítt i strætó !!!!! til að minka umferðina um bæjinn af einkabilum ,og það mundi mark borga sig ekki veit maður annað en það standi að það mundi ger það,kvað skal kall nú skrifa á Fesbokina sina skoðum það i kvöld eða morgunn/Halli gamli


mbl.is Fargjöld Strætó hækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 1045764

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband