Atkvæði greidd um bandorma/skattar á skatta ofan og ekkert annað!!!!!!

Atkvæði greidd um bandorma
Innlent | mbl.is | 18.12.2010 | 10:20

Frá Alþingi. Þingfundur á Alþingi hófst klukkan 10 í dag með atkvæðagreiðslum um tvö fjáröflunarfrumvörp ríkisstjórnarinnar, svonefnda bandorma. Annars vegar er um að ræða frumvarp um ráðstafanir í ríkisfjármálum og hins vegar um skatta og gjöld, sem Pétur Blöndal, þingmaður Sjáfstæisflokks,kallaði ranar Höggorm.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í upphafi atkvæðagreiðslunnar, að þingmenn flokksins legðust alfarið gegn frumvarpinu um ráðstafanir í ríkisfjármálum, það væri einfaldlega vont frá upphafi til enda. Hitt frumvarpið fæli hins vegar í sér nokkur framfaramál.

Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði að í frumvarpinu um ráðstafanir í ríkisfjármálum væri m.a. gert ráð fyrir því að auka verulega vaxtabætur sem skipti verulegu máli fyrir skuldsett fólk.

Sagði Helgi að vondir bandormar af þessu tagi hefðu oft verið afgreiddir frá hruni og haustið 2008 hefði ekki staðið á Sjálfstæðisflokknum að hækka skatta og álögur enda verið nauðsynlegt. Ljóst væri að afstaða flokksins réðist af því hvort hann væri í stjórn eða ábyrgðarlausri stjórnarandstöðu.

Birkir Jón Jónsson, þingmaður Framsóknarflokksins, sagði að síðara frumvarpið, um skatta og gjöld, „góði bandormurinn," væri eitt það ljótasta sem sést hefði á Alþingi. Frumvarpið væri 58 greinar og efnahags- og skattanefnd hefði aðeins haft hálfan mánuð til að fara yfir það. Breytingartillögur meirihlutans við frumvarpið hefðu þó að mestu leyti verið til bóta.

Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sagði að frumvarpið væri ekki bandormur heldur höggormur þar sem höggið væri til hægri og vinstri. Þar væri blandað saman ýmiskonar málum og myndu þingmenn Sjálfstæðisflokksins ýmist greiða atkvæði með eða á móti frumvarpsgreinunum eða sitja hjá. ////eins og sjá má þarna er þetta það  sem maður sagði áðan a´blogginu bara skattar á skattar ofan og ekkert annað sem núna er rætt að gera okkur ekki fært að búa i þessi landi ,enda munu flestir flýja sem geta/Halli gamli


mbl.is Atkvæði greidd um bandorma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ef Gunnarsstaða-Móri fær að ráða verða svo skattahækkanirnar skattlagðar.

Jóhann Elíasson, 18.12.2010 kl. 12:56

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

satt segir þú Jóhann Bloggvinur!!!!Kveðja

Haraldur Haraldsson, 18.12.2010 kl. 13:02

3 identicon

Eins og einhver sagði: Svona er Ísland í dag!

Skúli (IP-tala skráð) 19.12.2010 kl. 02:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 44
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband